Íslensk börn tíðir gestir vegna nikótíneitrunar

Valgerður Á. Rúnarsdóttir, forstjóri sjúkrahússins Vogs.
Valgerður Á. Rúnarsdóttir, forstjóri sjúkrahússins Vogs. mbl.is/Árni Sæberg

Tvö til þrjú börn og unglingar koma á viku koma á barnadeild Landspítalans með nikótíneitrun eftir að hafa sett upp í sig nikótínpúða. Nikótínpúðar eru fíkniefni og oftast fyrsta slíka efnið sem fólk notar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum þætti Einars Bárðarsonar, Einmitt, þar sem hann ræðir við Valgerði Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ.

Miklar áhyggjur af tíðni munntóbaksfíknar

Munntóbaksæði hefur gripið hefur fjölmennan hluta ungs fólks, sér í lagi íþróttafólks, hér á landi og Valgerður segir notkun nikotínpúða mikið áhyggjuefni, því regluverkið sé afar svifaseint á meðan markaðssetningin er stöðug og mikil.

„Það kom bara allt í einu rosa hress Svíi sem kom munntóbaki upp í alla ungu kynslóðina. Bara eins og að hann hefði verið að selja hillur úr IKEA. Hvað er að frétta af því?“ segir Einar í því sambandi og bætir við ef honum dytti í hug að hafa áhyggjur af börnunum sínum þá veit hann að þau geta ekki keypt sígarettur auðveldlega en þau geta valið úr gríðarlegum fjölda tegunda af nikótínpúðum.

Mjög ávanabindandi og mikið nikótín

Valgerður segir markaðsöflin hafa yfirhöndina og til dæmis mjög blekkjandi að talað sé um að efnið sé hvítt og liti ekki tennurnar. „Í raun er þetta mjög ávanabindandi og mikið nikótín í þessu. Þau sem nota þetta eru með þetta meira og minna allan daginn.“ Einar minnist einnig á sóðaskapinn sem af þessu hlýst. Á sama tíma og sígarettustubbar séu hverfandi á götum úti sjáist nú nikótínpúðar ansi víða.

Mestur fíknvandi tengdur löglegum efnum

Á Íslandi gilda lög og reglur um reyktóbak og Valgerður bendir á að seint um síðir hafi þau náð yfir rafrettur. Eftir eigi að setja slíkar reglur um nikotínpúða. „Þetta stóra sem snýr að fíkniefnum er þessi pólitíska umgjörð sem skiptir mestu máli. Þegar stundum er verið að tala um afglæpavæðingu og lögleiðingu, en við sjáum að mesti vandinn er tengdur löglegum efnum. Ég er 100% á því að ekki eigi refsa fólki fyrir neyslu eða vera með fíkn og það er yfirleitt ekki gert á Íslandi, þótt við höfum einhver dæmi um slíkt og hægt sé að gera betur. En við höfum ekki náð utan um þennan nýja faraldur sem við vitum ekki hvaða áhrif mun hafa,“ segir Valgerður.

Þáttinn má hlusta á í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert