Með allan barnaskarann á vellinum

Ryan Reynolds og Blake Lively ásamt tveimur dætrum sínum.
Ryan Reynolds og Blake Lively ásamt tveimur dætrum sínum. Ljósmynd/Matt Winkelmeyer

Stjörnuhjónin Ryan Reynolds og Blake Lively mættu með allan barnaskarann sinn á fótboltavöllinn í Wales síðastliðin laugardag. Tilefnið var að hvetja áfram velska fótboltaliðið, Wrexham AFC, en Reynolds er einn meðeiganda í liðinu. 

Hjónin mættu ásamt James, átta ára, Inez, sex ára, Betty, þriggja ára og nýfæddu barni sínu.

Leikaraparið átti góða stund með börnum sinum, bæði fyrir leikinn, þar sem þau léku sér saman á vellinum og eftir leikinn enda vann Wrexham AFC, 3-0. Reynolds fagnaði sigrinum ákaft á meðan leiknum stóð og einnig með færslu á Instagram.

Reynold og Lively eignuðust sitt fjórða barn fyrr á þessu ári og hefur stuðningslið Wrexham AFC því stækkað um einn meðlim.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert