Íslandsvinir eiga von á sínu fyrsta barni

Íslandsvinirnir Jack Whitehall og Roxy Horner eiga von á sínu …
Íslandsvinirnir Jack Whitehall og Roxy Horner eiga von á sínu fyrsta barni. Skjáskot/Instagram

Breski leikarinn og uppistandarinn Jack Whitehall og kærasta hans, fyrirsætan Roxy Horner, eiga von á sínu fyrsta barni. Whitehall deildi gleðifregnunum á Instagram–reikningi sínum, en þar birti hann fallegar myndir af parinu, skælbrosandi með sónarmyndir.

Whitehall hefur komið víða við en hann er án efa einna þekktastur fyrir Netflix-seríuna Jack Whitehall: Travels With My Father sem er einlæg og sprenghlægileg sería um ferðalög Whitehall-feðganna um heiminn.

Skötuhjúin byrjuðu saman árið 2020 og heimsóttu Ísland í byrjun síðasta árs. Parið birti af sér myndir á samfélagsmiðlum við Hallgrímskirkju og úr Bláa lóninu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert