Með soninn í 681 þúsund króna Dior-glæsikerru

Samsett mynd

Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian sættir sig ekki við neitt nema það allra flottasta fyrir börnin sín tvö, en hún birti nýverið myndskeið af níu mánaða gömlum syni sínum í glæsilegri kerru frá hönnunarhúsinu Dior.

Kardashian á tvö börn með körfuboltastjörnunni Tristan Thompson, dótturina True sem er fimm ára og soninn Tatum sem er níu mánaða gamall. Síðastliðin sunnudag fagnaði Kardashian mæðradeginum með fjölskyldu sinni þar sem hún keyrði son sinn um í glæsikerru frá Dior.

Kerran er blá og drapplituð, en hönnun hennar er í senn stílhrein og tímalaus. Stillanlegt skyggnið er skreytt með Dior merkinu, en þar að auki er stillanlegt leðurhandfang á kerrunni merkt Dior. Hún kostar 4.900 bandaríkjadali, eða sem nemur 681 þúsund krónum á gengi dagsins í dag.

Kerran er afar stílhrein.
Kerran er afar stílhrein. Ljósmynd/Dior.com

Í uppáhaldi hjá stjörnunum

Hönnun kerrunnar virðist hafa slegið í gegn hjá fjölmörgum stjörnum, en yngsta systir Kardashian, Kylie Jenner, fékk sömu kerruna og skiptitösku í stíl þegar hún hélt steypiboð áður en hún fæddi son sinn á síðasta ári. Skiptitaskan kostar 3.300 bandaríkjadali, eða rúmlega 458 þúsund krónur.

Þá hafa stjörnur á borð við Cardi B og Karlie Kloss einnig sést með vagninn, enda klassísk hönnun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert