Varð pabbi og afi með 8 mánaða millibili

Leikarinn Alec Baldwin og dóttir hans, Ireland Baldwin.
Leikarinn Alec Baldwin og dóttir hans, Ireland Baldwin. Samsett mynd

Fyrirsætan Ireland Baldwin og kærasti hennar RAC eignuðust sitt fyrsta barn saman á dögunum. Leikarinn Alec Baldwin er því orðinn afi aðeins átta mánuðum eftir að hann eignaðist sitt sjöunda barn með eiginkonu sinni Hilariu Baldwin. 

Ireland deildi gleðifréttunum með fylgjendum sínum á Instagram, en þau RAC, sem heitir réttu nafni André Allen Anjos, eignuðust dóttur sem hefur þegar fengið nafnið Holland. 

Segir kvíðann hafa aukist á meðgöngunni

Ireland er elsta dóttir Alecs og leikkonunnar Kim Basinger, en hún kom aðdáendum sínum á óvart þegar hún greindi frá óléttunni á gamlársdag. Síðan þá hefur hún talað opinskátt um hve mikil áskorun það hefur verið fyrir hana, bæði andlega og líkamlega, að vera ólétt. Hún glímir við mikinn heilsukvíða sem hún segir hafa aukist á meðgöngunni. 

Í mars síðastliðnum kom fyrirsætan fylgjendum sínum enn einu sinni á óvart þegar hún hélt steypiboð með heldur óhefðbundnu þema, en þema veislunnar var strippklúbbur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert