Þessi stjörnubörn hafa útskrifast á árinu

Það er yfir mörgu að gleðjast.
Það er yfir mörgu að gleðjast. Samsett mynd

Þessi frægu „börn“ eru öll að hefja nýja kafla í lífi sínu og eru frægu foreldrar þeirra að farast úr stolti. 

Sasha Obama 

Föstudaginn 12. maí útskrifaðist Sasha Obama, yngsta dóttir fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, Barack Obama og forsetafrú, Michelle Obama, frá háskólanum í Suður–Kaliforníu.

Obama-hjónin, ásamt Maliu, eldri systur Söshu, voru mætt til þess að fagna áfanganum með dóttur sinni og sást fjölskyldan óska öðrum útskriftarnemum og vinum og vandamönnum til hamingju. 

Paris Brosnan

Stórleikarinn Pierce Brosnan fagnaði afreki sonar síns á Instagram. „Kæri Paris, innilega til hamingju með útskriftina frá Loyola Marymount University School of Film & Television,“ skrifaði leikarinn við mynd af sér og eiginkonu sinni, Keely Shaye Brosnan, þar sem þau standa stolt við hlið sonar síns á útskriftardaginn. 

Sascha Seinfeld

Elsta barn grínistans Jerry Seinfeld er útskrifað. Sascha Seinfeld útskrifaðist með próf í ensku frá Duke University í Norður–Karólínu. Móðir Seinfeld, Jessica Seinfeld, óskaði dóttur sinni til hamingju með prófskírteinið á Instagram. 

„Þakka þér Duke University fyrir að skjóta litlu eldflauginni okkar áfram inn í næsta heiðhvolf,“ skrifaði Seinfeld við myndaseríu sem hún birti á samfélagsmiðlinum í tilefni dagsins. 

Ava Sambora

Dóttir Heather Locklear og Richie Sambora lauk meistaranámi úr hjónabands– og fjölskylduráðgjöf frá Rossier háskólanum í Suður–Karólínu.

Locklear birti mynd af dóttur sinni þar sem hún birtist á stórum skjá á leikvanginum þar sem útskriftin fór fram. „Ein stolt mamma. Til hamingju elskan mín með meistaragráðuna þína,“ skrifaði Locklear. 

Gia Giudice

Dóttir Teresu og Joe Giudice, sem eru hvað þekktust fyrir þáttöku sína í raunveruleikaþáttunum The Real Housewives of New Jersey, útskrifaðist úr afbrotafræði frá Háskólanum í New Jersey.

Giudice deildi nokkrum hvetjandi orðum um dóttur sína í tilefni útskriftarinnar. „Að sjá þig útskrifast úr háskóla er eitt stærsta augnablik lífs míns,“ sagði hún í einum hluta færslunnar. 

„Þú ruddir án efa brautina til velgengni fyrir systir þínar og ert innblástur fyrir þær og mig. Ég er spennt að sjá hvað framtíð þín ber í skauti sér.“

Lola Consuelos

Kelly Ripa og eiginmaður hennar til 27 ára, Mark Consuelos, geisluðu af gleði og stolti þegar þau horfðu á dóttur sína Lolu Consuelos, útskriftast frá New York University á miðvikudag. 

View this post on Instagram

A post shared by Kelly Ripa (@kellyripa)

Cara Cuomo 

Dóttir Andrew Cuomo, fyrrverandi ríkisstjóra New York, kom saman ásamt fjölskyldu sinni í tilefni þess að 28 ára gömul dóttir sín Cara Cuomo, var að útskrifast með viðskiptagráðu frá Wharton háskólanum í Pennsylvaníu. 

„Svo sérstakur dagur. Að fá að fagna þessu ótrúlega afreki hennar, öll saman,“ skrifaði Cuomo við mynd frá deginum á Instagram. 

View this post on Instagram

A post shared by Andrew Cuomo (@andrewcuomo)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert