Dóttir Serenu Williams sprengir krúttskalann

Mæðgurnar Serena Williams og Olympia.
Mæðgurnar Serena Williams og Olympia. Skjáskot/Instagram

Tennisstjarnan Serena Williams náði að festa viðbrögð fimm ára dóttur sinnar á filmu þegar hún sagði henni að hún væri ófrísk. Hún birti myndskeiðið á YouTube-rás sinni á dögunum.

Williams greindi frá óléttunni á Instagram-reikningi sínum í byrjun maí áður en hún mætti ásamt eiginmanni sínum, Alexis Ohanian, á Met Gala-hátíðina í New York.

„Það kom í ljós að ég er ekki að verða feit“

Í myndskeiðinu, sem ber titilinn Olympia's Surprise, byrjaði Serena á því að sýna nærmynd af jákvæðu þungunarprófi og sagðist vera „ofur hamingjusöm“. Hún deildi svo skemmtilegri sögu af Olympiu, en þegar dóttir hennar vissi ekki að hún væri ófrísk kallaði hún hana „feita“ og var stressuð vegna þyngdaraukningar móður sinnar.

Í næstu klippu sat fjölskyldan í sófanum þegar Williams spurði hana: „Manstu hvernig þú hefur verið að biðja fyrir því að eignast litla systur eða bróður?“

„Jæja, við fórum til læknis og það kom í ljós að ég er ekki að verða feit. En ég er með barn í maganum,“ sagði Williams. Viðbrögð Olympiu sprengdu krúttskalann. „Ha, ertu að grínast?“ sagði hún af spenningi. Hún var yfir sig glöð og faðmaði mömmu sína innilega. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert