Hefði þurft að fullorðnast ef hún hefði eignast börn

Jennifer Coolidge er sátt við að hafa ekki eignast börn.
Jennifer Coolidge er sátt við að hafa ekki eignast börn. AFP/Angela Weiss

Leikkonan Jennifer Coolidge segir að óþroski hennar hafi komið í veg fyrir að hún myndaði fjölskyldu. Hafi hún því aldrei eignast börn því hún sé sjálf í raun eins og lítið barn í anda. Auk þess hafi hún hreinlega aldrei fundið rétta manninn til að eignast börn með.

Hin 61 árs gamla Coolidge viðurkennir þetta í nýlegu viðtali við breska tímaritið GQ, þar sem hún segir einnig frá því að vinir hennar hafi hvatt hana til þess að ættleiða.

Coolidge segir hins vegar alltaf hafa séð sjálfa sig frekar í hlutverki stjúpmóðurinnar. Hún njóti þess þó að vera einhleyp og barnlaus, því það gefi henni tækifæri til þess að halda áfram að njóta næturlífsins. Ef hún hefði eignast börn hefði hún hins vegar þurft að fullorðnast og þroskast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert