Hvaða rapptexti finnst þér bestur?
Hér að neðan eru 10 bestu syrpuröppin ásamt textum, sem hægt er að lesa með því að smella á tengilinn neðan við hvert myndskeið.
Neðst á síðunni er valmynd þar sem þú getur gefið þeim texta sem þér finnst bestur þitt atkvæði.
Netkosningin gildir 50% á móti dómnefnd við val á þremur bestu textunum. Góða skemmtun!
Árný Lea
Skólinn minn
Árný Lea Grímsdóttir
Við hlaupum og hoppum
og dönsum og skoppum
Við klifrum og rennum
og skautum og kennum
Við málum og teiknum
og krítum og reiknum
Við lesum og lærum
og klippum með skærum
Og boltann í netið
og nýjasta metið
Við setjum
krakkar að skemmta sér
Við skrifum og spilum
og límum og festum
Við smíðum og saumum
og föndrum og bökum
Við eldum og borðum
og vöskum og þurrkum
Við tölum og hlæjum
og syngjum og fögnum
Og boltann í netið
og nýjasta metið
Við setjum
krakkar að skemmta sér
Gabríel Warén
Gabríel Warén texti Syrpurapp 2017
Ég helli í mig dropa
ég helli í mig dropa,
ja bara einn dropa
ja bara einn dropa,
ja ég fæ mér einn dropa.
Ég er fínn
Ég elska mig svo mikið
Ég gæti farið yfir strikið.
Ha, nei ekki aftur
Þú ert algjör kjaftur
Uppnefndu mig
kemst a fremsta stig.
Ég kemst svo langt á undan
Það er orðið framundan!
Ég skelli mér í buxur
Svo peysu svo peysu
Enga vitleysu.....
Ja sæll og fínn og það er díll
Ég hleyp í burtu, er farin i sturtu
Ja ja ja brrr
Já, há, hitti góða úlfinn
Hann er orðin stór ó shit hann er úlfur
ekki aftur
ég kanna þig tvisvar þrisvar við
tvær stelpur her við hlið
hann vill fá frið
já bara einn frið.
Það er lítil bið
Það er litil bið
Eg sný svo aftur við
Ég kalla svo á þig
horfðu i framan i mig
Ég er sulturapparinn
Þu þekkir mig.
Pottþétt stig fyrir mig.
FRANCI$ (Grandó)
GRANDÓ
Gra Gra Gra Grandó (Grandaskóli)
Þett er bara Grandó (Grandaskóli
Ég er í landó (landafræði)
For í Fifa og keypti fernando (fernando torres)
Ég er að grilla þetta eins og freaking brandco (brandco grill fyrirtæki)
Ég ætla fá mér malt og appelsínu bland Yo
Ég ætla að snæpa Fifa players eins og rango (að kaupa Fifa players á
litlu verði)
Er að verða 13 og er að fara í hagó (er að verða 13 og er að fara í
Hagaskóla á næsta ár)
Ég og Patti lentum næstum því saman í slag tho (fórum í
gannislag)
FRANCI$ X BRAUÐ OG CO BOYS
Nenni ekki að vakna
(Eftir Franci\$ (Brauð og Co & Boys) fyrir Syrpurapp 2017 )
Nenni ekki að vakna (x10)
Frikki er bara að skrifa textanna öh bíddu (ég er Frikki)
Á ég ekki bara að texta hana öh bíddu
Eigum við ekki bara að flexa það Yuh bíddu
(Brauð & Co Boys saman)
Frikki er bara að skrifa textanna öh biddu
Nenni ekki að vakna öh
Frikki er bara að syngja
Við erum bara að freaking rappa
(Ég)
væri (2x) til í allt
Fæ mér appelsín og malt
Þetta er rosa freaking svalt
Þetta er líka hella kalt
Nenni ekki að vakna (x10)
Ú.L.F. (Úlfhildur)
Ú.L.F. – Ég er Ú.L.F. eftir Ullywolf eða Úlfhildi Tómasdóttur
Ég er ÚLF og ég kann að rappa
með derru og gull
ég er engin mappa
ég held með Vesturbæjarskóla
Ásu og þóru og líka þessum Hrafni Óla
já á fimm fleiri vini
og við erum gengi
ég er svo flott
að ég höfuð þitt sprengi
ég á sætan kisa
sem heitir Leó
þegar hann mjálmar
þá heyrist út á Meló
Pabbi minn á Búlluna
og Búllan er best
ef þú ferð eitthvað annað
færðu bara pest
mamma er besta mamma í heimi
á hverjum degi um hana dreymi
Þossi, Elli, Ingvi, Tommi og Korka
í þeim býr rosa mikil orka
betri systkini er ekki hægt að finna
þau eru betri systkini en systkini allra hinna.
ég er ÚLF
ég sendi rímna skeyti
ég er ÚLF
mundu hvað ég heiti
ég er ÚLF
ég mæti í þetta teiti
og þegar það hefst ég leiknum breyti
Markús og Hrafnkell
Texti eftir Markús og Hrafnkel fyrir Syrpurapp 2017
Er ekki með handrit og þarf þess vegna að spinna
þetta gerist ekki af sjálfu sér
ég er alltaf að vinna
tölurnar bætast við
einhver gef mér nál og tvinna
ég er aðeins of hress
dreifi orku til allra hinna
og þú veist ekki hver ég er
þú veist ekki hvaðan ég kom
þú veist ekki hvert ég fer eða hvort ég mun snúa aftur.
Þú biður mig um margt
en ég gef þér ekki allt
þegar vantar ekki peninginn
bíð ég þér í malt
ekki messa við mig í textíl
ég sting þig með nál ég sökka í að skauta
já tjörnin er hál svo hitti ég hana Ásu
hún er kölluð Ása pjása
mamma hennar er tæja pæja með íslenskum gæja
þau búa á bökkum þau eiga fullt af krökkum
í íbúð frá feló en pabbi vinnur í meló.
Sóley Inga
Listakona
Ég vil fá að skapa, ég þarf að sýna,
heiminum hvað ég hef og hvaðan ég kem
ég vil tjá mig, láta sjá mig, ég vil hafa áhrif
ég vil læra hvað ég hef að færa
söngur, dans, teikna, mála, rappa og spila á hljóðfæri
Allir ættu að eiga sína
eigin leið til að skína
ég veit ég fann mína
sem ég ætla þér að sýna
ég ætla að rappa
ég ætla að syngja
ég ætla að hoppa
og fá alla með
í að skoppa
sýndu mér, þá sýni ég þér
hvað ég hef búið til
ég sko vil
hafa þig mér við hlið
það verður okkar lið
við skulum skapa list
og setja á okkar tvist
Allir ættu að eiga sína
eigin leið til að skína
ég veit ég fann mína
sem ég ætla þér að sýna
ég ætla að rappa
ég ætla að syngja
ég ætla að hoppa
og fá alla með
í að skoppa.
Ég er Sóley Inga, ég dýrka að syngja
ég er listakona, hef alltaf verið svona
ekki hætta að gera, það sem þú vilt vera
ekki hætta reyna
ekki gleyma
því sem skipti mestu máli
það er ekki úr stáli
stundum er það erfitt
stundum er það gaman
en mundu það er auðveldara þegar við erum saman
Ekki hætta að læra
það þarf einhverjar fórnir að færa
en þegar uppi er staðið
verður það allt þess virði
að gera, og vera
það sem þú vilt uppskera
Allir ættu að eiga sína
eigin leið til að skína
ég veit ég fann mína
sem ég ætla þér að sýna
ég ætla að rappa
ég ætla að syngja
ég ætla að hoppa
og fá alla með
í að skoppa.
Ég er glöð
marga daga í röð
ég kann að skapa
líka rappa.
ég vil vera hér
með þér
það er gaman
að vera saman
Þó ég vilji ferðast um heima og geima
skoða
upplifa
læra að lifa
þá vil ég alltaf
enda heima
Þó ég vilji ferðast um heima og geima
skoða
upplifa
læra að lifa
þá vil ég alltaf
enda heima
Dagur Guðna
Rappari
Ég er prakkari, geri prakkarastrik. Ég geri það sem ég vil.
Rappari en ekki hakkari, mér finnst gaman að vera til.
Þú biður mig að vera stilltur, en ég er samt svo góður piltur.
Ég fer út í búð án þess að stela. Þessvegna hef ég ekkert að fela.
Viðlag.
Prakkari - Hakkari.
Betra er að vera rappari.
Vendu þig á að vera stilltur, annars verður þú bara spilltur.
Prakkari - Hakkari.
Betra er að vera rappari.
Vendu þig á að vera stilltur, annars verður þú bara spilltur.
Því að góðir drengir gera það sem er best.
Og læra meir um lífið sem er ekki sem verstþ
Semja nokkra texta, rappa nokkur rím.
Rappa síðan aftur og aftur svo það verði – Heilalím.
Viðlag.
Georg Ari (Oyo)
Texti eftir Georg Ara fyrir Syrpurapp 2017
Hæ ég heiti George Ari
Ellefu ára strákur að reyna að verða rappari
Það er mín leið
til að segja það sem ég þarf að segja
Get ekki þagað, vil ekki þegja
Hef aldrei hagað
Seglum eftir vindi, beygi í þá átt sem ég sjálfur vildi
En stundum er það erfitt mörg rifrildi
En svo heyrið þið mig rappa huh það er fyndið
Þið skiljið mig ekki
vil ekki ykkar hlekki
Vil ekki passa
Í þessa kassa
Sjáið mig skína
Hættið að rýna
Meðan ég elti draumana mína
Ó vá
Það sem ég sá
Þegar þú reyndir að rappa mér brá
Mér er alveg sama hvað þú ert að fá
Orðið fyrir miklu...KKK
Brr brr hver er að hringja
Mikið hate en ég er enþá að syngja
Inni í hausnum bjöllurnar klingja
Þegar ég toppa þig verður erfitt að kyngja
Mikið hate en ég er ennþá að syngja
Ef ég geri eitthvað er ég klikkaður
En ef ég geri ekkert er ég latur
Heldur að þú sért einhver jay-z
Heldur þú að ég pæli í því
Ekki hringja í mig þegar ég geri mitt
Reyna segja mér en ég vissi
Ekki hringja í mig þegar ég geri mitt
Reyna stoppa mig með flissi
Tala og tala og tala
Meðan ég rappa og rappa og rappa
Þegar ég búinn fæ fólk til að klappa
Á meðan ég lifi þá ert þú að nappa
Oooo ye þú mátt bara fara heim
Kemst alla leið út í geim
Ég er ekki eins og þú það er sökkað
Ég er ekki eins og þú það er teim
Ó vá
Það sem ég sá
Þegar þú reyndir að rappa mér brá
Mér er alveg sama hvað þú ert að fá
Orðið fyrir miklu...KKK
Brr brr hver er að hringja
Mikið hate en ég er enþá að syngja
Þegar ég hleyp klinkið að klingja
Þegar ég toppa þig verður erfitt að kingja
Óli Björn og Tristan Máni (salt malt)
Salt malt
Ljósið dregur mig áfram,
ég er gerður til að vernda, skýt ekki boga eins og Gunnar á Hlíðarenda
Salt malt er komið út,
bíð þangað til maginn minn fer í hnút.
Tek panódíl svo ég geti einhvern tíma aftur sýnt mallakút
þarf ég að fara aftur,
Ég er orðinn eitur svartur blæs út reyk og valtur.
Ég lifi lífinu þangað til ég rotna í lík,
skrepp af stað í rútu á Sónar Reykjavík.
Ekkert lið fær að stoppa mig, reynir þangað til það missir sig,
fer á dyr og spyr hvort að einhver sé að leika við
lokað straxá mig og sagt: hypjaðu þig.
Salt salt salt sem breytist í malt malt malt.
Vil hafa'ða kalt kalt kalt
Salt malt. Salt malt
Rannsóknarstofa ekta vísindi, ég lofa
geimvísindi í krukku salt malt boðar lukku.
Skæri og penni, ég er hrifinn af henni.
Tveir ungir krakkar heyrið hvernig hann rappar,
hóa í lögguna- hlustaðu röddina.
Hvenær fæ ég næsta gigg, á hverju kvöldi nautahrygg.
Snúðar að hanga saman
þurfa ekki að rappa, bara hafa gaman.
Í rólu og leika og ákveða hver er rosa kennara-sleikja.
Niðri á hafsbotni, sofandi. Veit ekki, rosa leiðindi.
Í stúdíói standandi,
Er það vandi
Á landi?