Gengið um Prestastíg

Glaðbeittur gönguhópur stillir sér upp í litaröð að lokinni göngu.
Glaðbeittur gönguhópur stillir sér upp í litaröð að lokinni göngu. Ljósmynd/EinarSkúlason

Hún liggur annars á milli Húsatófta vestan Grindavíkur og að Kalmanstjörn sunnan Hafna. Eins og heitið gefur til kynna fóru prestar þessa leið þó að þeir hafi ekki verið jafn margir og vermennirnir sem fóru um stíginn til þess að fara í verbúðir í Höfnum, Hvalsnesi og víðar á Suðurnesjum. Margir þeirra höfðu komið langt að austur úr sveitum og jafnvel enn lengra og það hefur væntanlega verið léttir að sjá fyrir endann á göngunni enda var þetta í upphafi góu sem vorvertíð hófst og vetur enn þá ríkjandi.  

Fjölbreytt leið

Ef farið er af stað vestan megin er lagt í hann skammt frá Kalmanstjörn og farið um Hafnarsand norðan megin við Presthól og sjálfsagt að rölta upp á hólinn og skoða útsýnið í átt að Reykjanestánni. Þaðan er farið ofan í sigdalinn upp af Stóru-Sandvík og þaðan hjá Haug og yfir Haugsvörðugjá og með rótum Sandfellshæðar samhliða hraunjaðri Eldvarpahrauns. Svo er gengið um hraunið og fram hjá Rauðhóli og skemmtilegt getur reynst að fara upp á þennan fallega gíg. Þaðan er svo stutt að Eldvörpum og þar má líka skoða nokkra af gígunum í nærmynd í þessari 10 km löngu gígaröð en fara þarf varlega og ganga vel um þessar náttúruminjar. Eftir það liggur leiðin yfir nokkrar smærri gjár og í hraunjaðri uns komið er niður vestan megin við golfvöllinn í Húsatóftum. Þetta er fjölbreytt og skemmtileg leið sem má fara allt árið og hún er bæði vörðuð og stikuð. Gætið þess þó á veturna að snjór getur fokið yfir sprungur og falið þær.  

Á göngunni má skoða mikið af gígum í návígi.
Á göngunni má skoða mikið af gígum í návígi. Ljósmynd/EinarSkúlason

Hraun og sprungur 

Landslagið er fjölbreytt og má sjá hraun á mismunandi aldursskeiðum. Það yngsta er Eldvarpahraun sem rann á fyrri hluta 13. aldar og gígarnir eru tilkomumiklir í Eldvörpum. Landrekið er einnig mjög sýnilegt og er Haugsvörðugjá dæmigerður sigdalur þar sem flekaskilin milli Evrasíuflekans og Ameríkuflekans eru mjög skýr. Flekana rekur í sundur um 2 cm á ári og landið hér er því töluverðum breytingum háð. Þekktasta sigdældin á Íslandi er Þingvalladældin á milli Almannagjár og Hrafnagjár með Þingvallavatni í lægri hluta dældarinnar. Leifar af gömlum gjallgígum eru við barminn á Haugsvörðugjá en hafa fyrir löngu misst lögun sína og líkjast mest hrúgöldum, hólum eða haugum og þaðan fær gjáin nafn sitt enda er hinn svonefndi Haugur rétt norðan við Prestastíginn á vestari brúninni. 

Átak í vegagerð

Á seinni hluta 19. aldar var gert átak í vegagerð á Íslandi. Í sumum tilvikum var vegagerðin þegnskylduvinna og annars staðar var greitt fyrir vinnuna. Á Prestastígnum má helst sjá þess merki þar sem grjót hefur víða greinilega verið borið af götunni og þá hafa verið hlaðnar upp í nokkrar sprungur eins konar brýr. Hafið augun hjá ykkur þegar að þið farið yfir sprungur til að líta eftir slíkum hleðslum. Sums staðar má sjá skýrt markaða götu í hraunhelluna. Skeifur hestanna mörkuðu rauf í gegnum aldirnar og hér er því bókstaflega verið að feta í fótspor fólks fyrr á öldum. Stærsti munurinn á fótsporunum er hins vegar sá að fólk í dag notar annars konar skóbúnað en sauðskinnsskóna forðum. Enn meiri fróðleikur um leiðina er í leiðarlýsingunni á Wappinu.

Hér má sjá skjáskot af leiðinni en hana má finna …
Hér má sjá skjáskot af leiðinni en hana má finna í smáforritinu. Skjáskot/wapp.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert