Nýtt lággjaldaflugfélag

Tilkynnt var um stofnun flugfélagsins á dögunum.
Tilkynnt var um stofnun flugfélagsins á dögunum. Ljósmynd/Zip Air

Búningar flugliðanna hafa vakið mikla athygli en þeir eru hannaðir af japanska fatahönnuðinum Taro Horiuchi. Grái liturinn, sem er þemalitur flugfélagsins, er allsráðandi að öllu leyti nema þegar kemur að skóbúnaði, hann er nefnilega snjóhvítur.

Skórnir eru að sögn hönnuðarins afskaplega þægilegir.
Skórnir eru að sögn hönnuðarins afskaplega þægilegir. Ljósmynd/Zip Air

Að sögn hönnuðarins var lagt upp með að búningarnir væru þægilegir og gerðu flugliðunum auðveldara fyrir að sinna sínu starfi án vandkvæða, þess vegna varð niðurstaðan sú að velja hvíta strigaskó sem hluta af búningunum. Strigaskórnir eru af tegundinni Dunlop Volleys, koma frá Ástralíu og eru að sögn Taro Horiuchi afar þægilegir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert