Fjölbreyttar hjólaleiðir um höfuðborgarsvæðið

Þá vilja enn aðrir blanda þessu tvennu saman og helst njóta náttúrunnar um leið. Hér eru nokkrar leiðir sem vinsælt er að hjóla og ættu flestir að geta fundið sér leið og vegalengd við hæfi. Stuttir hringir. Þessir hringir eiga það sameiginlegt að þeir eru ekki hentugir fyrir mikla spretti. Á sumum stöðum eru reyndar aðgreindir hjólastígar, en oft deila hjólreiðamenn stígunum með gangandi.

Fossvogur-Kópavogur – 12 km

Byrjað við N1 í Fossvogi og hjólað á göngubrúnni yfir Kringlumýrarbraut. Góður hjólastígur er eftir öllum Fossvogi, en passa þarf upp á gangandi vegfarendur sem geta gengið um stíginn. Rétt áður en komið er að Víkingssvæðinu er beygt til hægri og stefnan tekin á neðsta hluta Smiðjuvegarins. Stígurinn liggur svo fyrir ofan Tengi og meðfram Reykjanesbrautinni í gegnum tvenn undirgöng þar til maður er kominn fyrir ofan Dalveginn. Í Kópavogsdalnum þarf að huga vel að gangandi vegfarendum, en velja má nokkra stíga til að koma sér að undirgöngunum undir Hafnarfjarðarveginn. Að lokum er farinn hringur á Kársnesinu meðfram sjónum, en sérstaka aðgát þarf að hafa þegar farið er yfir Vesturvör, rétt áður en komið er inn á Kársnesstíginn að norðan.

Laugardalur-Vogar – 10 km

Byrjað við Glæsibæ og hjólað í átt að Grand hóteli á hjólastígnum fyrir neðan Suðurlandsbraut. Þegar komið er að Kringlumýrarbraut er beygt í átt að Sæbraut og hjólað niður að henni og yfir gönguljósin. Hjólastígurinn farinn til austurs og beygt niður Klettagarða og aftur upp hjá hringtorginu hjá Eimskip. Beygt inn Vatnagarða, fram hjá Holtagörðum og inn Skútuvog og síðar Súðarvog. Þessi misserin eru framkvæmdir í Súðarvogi sem gæti þurft að varast. Við gatnamót Súðarvogs og Sæbrautar er Sæbrautin þveruð og komið inn á stíg sem svo liggur meðfram Suðurlandsbrautinni að Glæsibæ á ný.

Elliðaárdalur – 10 km

Byrjað við Sprengisand og haldið undir Reykjanesbrautina inn í Elliðaárdal og yfir nýju göngu- og hjólabrýrnar yfir á Rafstöðvarveg. Klifrað upp brekkuna og undir Höfðabakka. Haldið áfram norðan megin við árnar og upp meðfram æfingasvæði Fylkis og alla leið upp að gömlu brúnni við Breiðholtsbraut. Þar þarf að fara af hjólinu til að komast yfir. Leiðin til baka er svo sunnan megin við Elliðaárnar, en þegar komið er fram hjá Höfðabakka er hægt að velja að fara niður stíginn meðfram ánni, eða taka hliðarstíg og fara að Stekkjarbakka og þar niður nýlegan stíg.

Hjólað um Ægissíðuna, sem er meðal annars hluti af svokölluðum …
Hjólað um Ægissíðuna, sem er meðal annars hluti af svokölluðum Reykjavíkurhring. mbl.is/​Hari

Millilangar leiðir

Á nokkrum stöðum í Reykjavíkurhringnum getur hjólreiðafólk tekið ágætlega á því, en á milli eru kaflar þar sem huga þarf vel að gangandi og ætti hraði að vera í samræmi við það. Á seinni tveimur leiðunum er meira um kafla þar sem hægt er að keyra upp tempóið, svo sem í Mosfellsdalnum, á Álftanesvegi og Flóttamannaleið. Flottir hringir fyrir þá sem eru að byggja upp formið eða þá sem vilja aðeins lengri túra á þægilegum hraða.

RVK hringur – 27 km

Byrjað við N1 í Fossvogi og hjólað meðfram strandlengjunni í vesturátt. Farið fram hjá Nauthólsvík og flugvellinum og beygt inn á götuna Skeljanes, þaðan á Einarsnes og inn á Suðurgötu. Til móts við Þorragötu er beygt inn á Ægisíðu. Hringur tekinn um Faxaskjól og Sörlaskjól og svo út á Nesveg upp að gatnamótunum við Suðurströnd. Farið alla leið út að bílastæðinu áður en komið er út á golfvöllinn á Seltjarnarnesi og þaðan farið í átt að Gróttuvita. Á þessum slóðum þarf að huga sérstaklega vel að gangandi vegfarendum sem eru fjölmargir. Nýi hjólastígurinn tekinn frá Gróttu og út á Granda þar sem hægt er að velja um að taka auka kílómetra um Fiskislóð og Grandagarð, eða fara beint á Mýrargötu. Aftur þarf sérstaka aðgát gagnvart gangandi meðfram gömlu höfninni og að Hörpu. Farinn hjólastígur meðfram Sæbraut þar sem aftur þarf að hafa sérstaka aðgát við Sólfarið. Vinsælt er að fara Klettagarða, Vatnagarða, Skútuvog og Súðarvog í stað Sæbrautarinnar. Við Endurvinnsluna er beygt inn á hjólastíg sem liggur í átt að Bíldshöfða, en svo er beygt inn á Rafstöðvarveg og yfir nýju brýrnar yfir Elliðaár. Fossvogurinn tekinn til baka að N1. Hægt að lengja leiðina um 5 km með því að taka aukalega Kópavogsdal og Kársnes í staðinn fyrir Fossvogsdal.

Álftanes-Flóttamannaleið – 40-45 km

Aftur er byrjað miðsvæðis við N1 í Fossvogi. Farið um Kársnes og yfir Arnarnesið og inn á nýjan hjólastíg meðfram Hafnarfjarðarveginum. Beygt inn á Vífilsstaðaveg og í gegnum tvö hringtorg fram hjá Sjálandshverfinu. Við hringtorgið á Álftanesvegi er gamli vegurinn í átt að Garðaholti tekinn og svo inn á göngu- og hjólastíg sem liggur meðfram veginum og fer að lokum undir nýja Álftanesveginn og fylgir honum út að Bessastaðaafleggjara. Þar er hægt að velja um að fara í heimsókn til forsetans, hring um Álftanesið eða beint til baka. Beygt upp Garðaveginn og yfir hæðina og fram hjá Hrafnistu. Vegna framkvæmda nú er hjáleið við gamla Álftanesveg. Niður Herjólfsgötu á stígnum meðfram sjónum og allri Strandgötunni langleiðina að Ásvöllum. Á fyrsta hringtorgi eftir að hafa farið undir Reykjanesbrautina er farið inn í Áslandshverfið, annaðhvort upp og niður Ásbrautina, eða stígana meðfram Ástjörn. Síðari kosturinn kallar á talsvert erfiðara klifur. Komið niður á Kaldárselsveg og þaðan farið inn á gömlu flóttamannaleiðina/ Elliðavatnsveg, þaðan upp Vífilsstaðabrekkuna og inn í Kórahverfið. Hægt að fara bæði Vatnsendaveg eða stíga í gegnum hverfið þangað til komið er að göngunum undir Breiðholtsbraut. Þaðan liggur leiðin niður Elliðaárdal og Fossvogsdal að upphafsreit.

Sprengisandur-Gljúfrasteinn – 40 km

Leiðin hefst við Sprengisand þaðan sem farið er undir Reykjanesbrautina og yfir nýju brýrnar yfir Elliðaár. Stefnan tekin á Sævarhöfða og fram hjá Bryggjuhverfinu, inn á stíg meðfram Gullinbrú og yfir í Grafarvog. Hjólað á stígum meðfram voginum að Keldum og þaðan upp smá klifur að Vesturlandsvegi. Beygt og farið undir Vesturlandsveginn rétt eftir slaufuna við Víkurveg og farið áfram upp meðfram Bauhaus. Stígurinn hjólaður alla leið í Mosfellsbæ, en við Lágafell er farið aftur undir Vesturlandsveginn og í átt að miðbæ Mosfellsbæjar. Hægt er að fara niður Háholtið þar sem önnur undirgöng eru undir Vesturlandsveg og farið upp frá Álafossi á stíg austan við Vesturlandsveg. Beygt inn Mosfellsdalinn og hjólað sem leið liggur að Gljúfrasteini. Hægt er að fara sömu leið til baka, eða taka stígana í Mosfellsbæ og Grafarvogi sem liggja við sjávarsíðuna. Ef seinni leiðin er valin er farið í gegnum listaverkagarðinn við Gufunes og þaðan meðfram Strandvegi og Gullinbrú þangað til komið er undir brúna sjálfa og inn í Bryggjuhverfi á ný.

Þegar fólk hefur hjólað reglulega styttri hringina er um að …
Þegar fólk hefur hjólað reglulega styttri hringina er um að gera að lengja þá og fara 30-50 km leiðir. mbl.is/Styrmir Kári

Stóru leiðirnar

Fyrir hjólreiðafólk sem vill ögra sjálfu sér og er að byggja upp þol og getu fyrir keppnir sumarsins. Í huga margra sem fara út í hjólaæfingar er markmiðið sett á að fara 100+ km í einum túr. Fyrir þá sem eru komnir lengra eru þetta góðar æfingar um helgar.

Krýsuvík 50-100 km

Hægt er að taka upphitun innanbæjar, en svo er haldið út á Velli í Hafnarfirði. Mjög gott er að æfa samhjól upp Krýsuvíkurveginn, en hafa þarf í huga að hæðin eftir afleggjarann að Vigdísarvöllum er enn ómalbikuð. Þetta er þó aðeins um einn kílómetri samtals, en fara þarf varlega á götuhjólum til að sprengja ekki. Þaðan liggur leiðin niður að Suðurstrandarvegi, en þó með fjölda hækkana inn á milli. Þegar komið er á Suðurstrandarveg er hægt að fara bæði til austurs og vesturs, en það fer svo eftir því hversu langt á að hjóla hvenær snúið er við og farið aftur í bæinn.

Þrengslin-Suðurstrandarvegur-Krýsuvík – 110-120 km

Hjólað út úr bænum inn á Suðurlandsveg og alla leið upp að Þrengslaafleggjara. Hér þarf að hafa í huga að mikil umferð er á veginum og vegöxlin getur víða verið full af óhreinindum og á nokkrum stöðum nokkuð sprungin. Þegar þessi kafli er búinn er hins vegar um fínustu hjólaleið að ræða. Farið í gegnum Þrengslin og niður að Þorlákshöfn, þar sem jafnframt er hægt að fá sér hressingu. Svo er Suðurstrandarvegurinn hjólaður þangað til beygt er inn á Krýsuvíkurveg og þaðan í Hafnarfjörð.

Þingvellir-Nesjavellir – 90-120 km

Leiðin hefst eins og þegar farið er upp í Gljúfrastein, en í stað þess að snúa við er haldið áfram yfir Mosfellsheiði. Sumir vilja fara alla leið niður í þjónustumiðstöðina og fá sér hressingu þar, meðan aðrir velja að taka beint beygjuna inn á Grafningsveg og að Nesjavöllum og fá sér hressingu á ION hóteli. Eftir að hafa notið einnar fallegustu hjólaleiðar landsins á Grafningsvegi er komið að raunveruleikanum á ný: Nesjavallabrekkunni. Hún er 3,1 kílómetri að lengd með meðalhalla upp á um 7% og eru bröttustu kaflarnir yfir 15%. Þegar komið er fram hjá Dyrfjöllunum eru næstu rúmlega 20 kílómetrar aflíðandi niður á við þangað til komið er á Suðurlandsveg, þaðan sem aftur er hjólað inn í borgina. Vegalengdin fer eftir því hvort farið er niður á Þingvelli, á ION eða öllum útúrdúrum sleppt.

Þegar stefnir í gott veður og hjólaformið er orðið gott …
Þegar stefnir í gott veður og hjólaformið er orðið gott er skemmtilegt að skella sér á Þingvelli og jafnvel Nesjavallahringinn. mbl.is/Brynjar Gauti

Hvalfjörður – 120 km

Þægilegast er að koma keyrandi og leggja við Tíðaskarð. Hjólaður er allur fjörðurinn fram og til baka, en einnig er hægt að stoppa og snúa við t.d. í botninum eða í Ferstiklu. Einstaklega skemmtileg leið í góðu veðri með fjölbreyttum áskorunum.

Reykjaneshringur – 150 km

Byrjað við Fjörð í Hafnarfirði og farið meðfram Hvaleyrarvelli og út á Reykjanesbrautina. Líkt og með Hellisheiðina þarf að passa sig á mikilli bílaumferð og vegöxlum sem geta verið óhreinar og í mismunandi ásigkomulagi fyrir götuhjólreiðar. Mælt er með að taka hringinn um Voga á Vatnsleysuströnd og fara í gegnum Reykjanesbæ. Farið er þaðan í Sandgerði og svo til suðurs, veg 45, fram hjá Höfnum og Reykjanesvita og í Grindavík. Þar er gott að stoppa stutt og fá sér hressingu áður en haldið er áfram Suðurstrandarveginn og beygt upp Krýsuvíkurveg og haldið yfir í Hafnarfjörð á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert