Fatnaður sem áður var læstur ofan í skúffum á sumum heimilum er orðinn eftirsóknarverður hjá leikskólabörnum. Það er því ekki úr vegi að stíga næsta skref og bóka BDSM-herbergi fyrir næstu rómantísku helgarferð. Ferðavefurinn hefur tekið saman nokkra valkosti
The Crazy Bear Hotel, Bretland
Dökkar innréttingar og gylltar skreytingar setja svip á þetta dulúðlega hótel sem staðsett er í klukkutíma fjarlægð frá London í eldgömlu húsi frá 16.öld. Flest herbergi erum með gylltu baðkari við rúmstokkinn og gaddaskreyttum veggjum.
Hotel Amour, París
Eins og nafnið gefur til kynna er ástin í aðalhlutverki á þessu hóteli.Húsbúnaður og hönnunin á hótelinu er öll til þess gerð að örva skilningarvitin og búa til afslappað andrúmsloft. Hótelið er staðsett í 9.hverfi Parísar sem er nálægt búðum sem bjóða upp á ýmiskonar BDSM-búnað og því ekki úr vegi að grípa nýtt dót í safnið.
Stay and Play, Los Angeles
Þessi íbúð er fyrir lengra komna en hún er meðal annars búin einskonar svefnbúrum og ýmiskonar leiktækjum ætluðum til BDSM ástundunar.
BXG Suite at Sanctum, SoHo, London
Það færist í aukana að hótel láti sérhanna svítur með ákveðnu þema líkt og BDSM-svítan á Sanctum hótelinu í London. Hægt er að panta upp á herbergið gjafaöskju með sérvöldum leikföngum að hætti 50 Shades Of Grey.
Cherry Twins, Kiev
Hótelið býður upp á sjö svítur sem allar eru hannaðar í samstarfi við kynfræðing. Gestum er boðið að velja á milli herbergja með mismunandi þemu svo sem kennslu- og læknisstofu.