United Airlines mun bjóða upp á daglegar ferðir milli Íslands og Newark-flugvallar við New York í sumar og fram í október. Frá þessu er greint í kynningargrein á vefnum Túristi.is. United hefur áður boðið upp á árstíðabundið áætlunarflug sitt á milli Keflavíkur og Newark-flugvallar.
Flogið verður með Boeing 757-200-flugvélum með samtals 169 sæti. Ferðirnar hefjast 7. júní og verða í boði til 4. október.
„Við erum hæstánægð með að halda úti beinu flugi milli Reykjavíkur og New York/Newark í sumar. Flugið býður ekki aðeins viðskiptavinum okkar á Íslandi upp á þægilega komutíma í New York-borg heldur einnig möguleika á tengiflugi til meira en 70 áfangastaða í Bandaríkjunum, Kanada, Mexíkó, Karabíska hafinu eða Mið-Ameríku,” er haft eftir Bob Schumacher, framkvæmdastjóra sölusviðs United í Bretlandi, Írlandi og Íslandi.
Flug United fer frá Keflavík klukkan 11.55 á hverjum degi og lendir í New York/Newark klukkan 14:05 sama dag. Flugið til baka fer frá New York/Newark klukkan 22.40 á hverjum degi og lendir klukkan 8:20 daginn eftir.