Ætlar að leggja mikinn metnað í bikinífar

Skemmtikrafurinn og gleðigjafinn Eva Ruza á skemmtilegt sumar í vændum.
Skemmtikrafurinn og gleðigjafinn Eva Ruza á skemmtilegt sumar í vændum. Ljósmynd/Aðsend

Hún ætlar að byrja á því að vera kynnir á stóra sviðinu á hinu litríka The Color Run Iceland sem haldið verður 1. júní. Júlí ætlar hún að nota til að slaka á og slökkva á símanum. „Ég ætla að yfirgefa skerið með fjölskylduna í eftirdragi og heimsækja ættingja og vini í Slóveníu og Króatíu. Þar ætla ég að flatmaga með einn ískaffi á ströndinni og horfa á börnin brussast í sjónum,“ segir Eva Ruza og bætir við að einnig ætli hún að leggja mikinn metnað í bikinífar og upplitað hár. „Ég mun samt að sjálfsögðu nota sólarvörn númer 30 mamma, engar áhyggjur.“

Fjölskyldan ætlar að leggja land undir fót og heimsækja Króatíu …
Fjölskyldan ætlar að leggja land undir fót og heimsækja Króatíu og Slóveníu. Ljósmynd/Aðsend

Að fríinu loknu ætlar Eva eitthvað að tæta um landið og skemmta á hinum ýmsu viðburðum. „Ég enda svo sumarið, þann 31. ágúst, klædd í fagran glimmerkjól og kynna á Miss Universe Iceland keppninni. Ég geri ráð fyrir því að þetta verði besta sumar lífsins...eins og öll fyrri sumur.“

Í lok sumars mun Eva Ruza stíga á stokk í …
Í lok sumars mun Eva Ruza stíga á stokk í glæsilegum glimmerkjól þar sem hún verður kynnir á Miss Universe Iceland-keppninni. Ljósmynd/North Pole Studio

Þess á milli má búast við að okkar nái að slaka á, eða hvað? „Omg hvernig get ég gleymt! Ég er líka að fara til London í júní með mömmu og systrum mínum á Spice Girls. Það verður epic ferð get ég sagt þér!“

Fylgjast má með Evu Ruzu á vefsíðu hennar en þar liggur hún á glugganum hjá fræga fólkinu og segir okkur allar nýjustu fréttirnar. 
Einnig er hún á Instagram undir nafninu evaruza og svo auðvitað á Snapchat undir sama dulnefni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert