Úr hlaupahjólum í rafmagnshjól

Er Bird hlaupahjól eða hreinlega vespa?
Er Bird hlaupahjól eða hreinlega vespa? Ljósmynd/Bird

Sitt sýnist hverjum um ágæti hlaupahjólanna og veldur það fólki helst ama að notendur eigi það til að skilja hlaupahjólin eftir þannig að þau verða fyrir öðrum vegfarendum og eru til lítillar prýði. Þá finnst ekki öllum gott að nota hlaupahjól, þó það sé rafdrifið og lítil dekk hlaupahjólanna ráða ekki við mikið meira en rennisléttar gangstéttir.

Bird hefur tekið forystuna í rafhlaupahjólabyltingunni og gengur núna skrefi lengra með því að bæta rafmagnshjólum við flotann sinn. Væri raunar nær að kalla Bird Cruiser vespu, því engir eru pedalarnir og gengur farartækið fyrir rafmagninu einu saman.

Hér er komin græja sem leysir ýmis vandamál hlaupahjólsins: Notandinn þarf ekki að standa heldur getur setið, og raunar er pláss fyrir tvo á sessunni. Hjólin eru stór, feit og fjöðruð svo að Cruiser ætti að ráða við grófa möl og dældað malbik.

Hleðslan ku duga allt að 80 km en ekki hefur verið gefið upp hver hámarkshraði Cruiser verður.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert