Þetta eru bestu flugfélögin í heimi

Qatar var valið besta flugfélag í heimi í fimmta skipti.
Qatar var valið besta flugfélag í heimi í fimmta skipti. Ljósmynd/Pixabay

Í ár var það Qatar Airways sem bar sigur úr býtum og það ekki í fyrsta skiptið heldur það fimmta frá upphafi. Vefsíðan Skytrax hélt að vanda utan um umsagnir og kosningu farþega sem kusu flugfélagið það allra besta þetta árið.

Forráðamenn flugfélagsins fengu afhent verðlaun fyrir þennan árangur á flugvélasýningu í París í vikunni og voru að vonum hæstánægðir með viðurkenningurna.

Flugfélagið Singapore Airlines var í öðru sæti og japanska flugfélagið ANA All Nippon Airways í því þriðja. Heildarlistann má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert