Brot af því besta í Washington

Washington er heillandi borg sem hefur upp á margt að …
Washington er heillandi borg sem hefur upp á margt að bjóða. Ljósmynd/Pixabay

Borgin hefur hingað til ekki verið sérstaklega þekkt sem matarborg en þó er heilmikið um að vera þegar kemur að góðum mat eins og eftirfarandi listi gefur til kynna. 

Rétt upp hönd sem væri til í að dýfa sér …
Rétt upp hönd sem væri til í að dýfa sér í þessar kökur. Ljósmynd/Baked & Wired

Bestu súkkulaðismákökurnar í borginni má finna á einu skemmtilegasta svæði borgarinnar sem heitir Georgetown og minnir um margt á svæði í Evrópu. Þar er að finna bakarí sem heitir Baked & Wired og að sögn leynilegra upplýsinga sem Ferðavefurinn hefur undir höndum þá er þarna að finna bestu súkkulaðismákökurnar. 

Baka í morgunmat, hádegismat og kvöldmat, er það nokkuð of …
Baka í morgunmat, hádegismat og kvöldmat, er það nokkuð of mikið? Ljósmynd/Pie Sisters

Hver elskar ekki ekta bandaríska böku, svona eins og við sjáum í bíómyndum á borð við Waitress. Á svipuðum slóðum og Baked & Wired bakaríið má finna annað bakarí sem heitir Pie Sisters og er í eigu þriggja systra sem lifa fyrir bökur af öllum stærðum og gerðum. Í bakaríinu er að finna eftirréttarbökur en einnig bökur sem henta vel sem máltíð, hvort sem er í morgunmat, hádegismat eða kvöldmat. 

Veitingastaður sem heitir því skemmtilega nafni Lucky Buns hlýtur að …
Veitingastaður sem heitir því skemmtilega nafni Lucky Buns hlýtur að boða eitthvað gott. Ljósmynd/Lucky Buns

Það er ekki hægt að gera lista um góðan mat í Bandaríkjunum án þess að á honum sé góður hamborgari. Samkvæmt útsendara á vegum Ferðavefsins er það hamborgarastaðurinn Lucky Buns sem ber víst höfuð og herðar yfir aðra álíka í borginni. Veitingastaðurinn er staðsettur í Adams Morgan hverfinu sem er heillandi hverfi stútfullt af skemmtilegum veitingastöðum og kaffihúsum.

Eintóm gleði í gosbrunninum.
Eintóm gleði í gosbrunninum. Ljósmynd/AnacostiaPark

Á sumrin ætti að skylda alla að fara í að minnsta kosti eina lautarferð, hvort sem það er hérna heima eða á erlendri grundu. Veðrið spilar að sjálfsögðu stórt hlutverk þegar farið er í eina slíka ferð en í Washington er oftast gott veður, allavega yfir sumartímann. Við Anacostia ánna í borginni er víst að finna besta svæðið fyrir lautarferð. Þar eru The Dancing Fountains þar sem börn og sumir fullorðnir geta skellt sér í og kælt sig niður í gosbrunninum. Á föstudögum á sumrin er svo boðið upp á ókeypis tónleika sem fullkomnar lautarferðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert