Best að millilenda á Íslandi

Mælt er með því að ferðast um Suðurlandið þegar millilent …
Mælt er með því að ferðast um Suðurlandið þegar millilent er á Íslandi. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Ísland er vinsæll kostur hjá ferðamönnum sem eru á löngum ferðalögum og vilja skipta ferðalaginu upp í tvo hluta. Reyndar er Ísland svo góður kostur að höfuðborgin er efst lista Independent yfir þær borgir sem þykja hve ákjósanlegastar þegar þarf að skipt langri ferð upp í tvennt og gista. 

Independent mælir með því að koma við á Íslandi á leiðinni til Norður-Ameríku. Það er mælt með því að fólk geri klassíska hluti í leiðinni eins og að fara í Bláa lónið, fara á Gullfoss, Geysi og Þingvelli. 

Reykjavík er í góðum hópi á listanum en á eftir Reykjavík koma Abu Dhabi, Miamí, Perth, Madríd, Singapore, Lissabon, Dubaí, Atlanta og Hong Kong. 

Louvre Abu Dhabi. Mælt er með að stoppa við í …
Louvre Abu Dhabi. Mælt er með að stoppa við í Abu Dhabi. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert