Hagstæðast að panta jólaferðina í september

Það er hagstæðast að bóka jólaferðina í lok september.
Það er hagstæðast að bóka jólaferðina í lok september. mbl.is/Pexels

Samkvæmt upplýsingum frá SkyScanner er hagstæðast að panta jólaferðina með 13 vikna fyrirvara. Þá er líklegast að þú náir góðu flugi og góðu hóteli án þess að þurfa að tæma veskið. 

Næsta vika er um það bil þrettán vikum fyrir jól, svo nú er um að gera að fara skoða hvaða áfangastaðir heilla þig mest, ef þú hyggst á annað borð að verja jólahátíðinni erlendis.

Það verður ætíð vinsælla hjá Íslendingum að vera erlendis yfir jólin og áramótin, hvort sem það er á sólarströnd eða í skíðabrekkum Alpanna. Flestir ferðast á tímabilinu 16.-31. desember en samkvæmt SkyScanner er þó rólegast hinn 16. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert