Karíbahafið fer vel með Pál Óskar

Ekki hafa áhyggjur af Páli Óskari því Karíbahafið er að …
Ekki hafa áhyggjur af Páli Óskari því Karíbahafið er að fara mjúkum höndum um okkar mann. skjáskot/Instagram

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar er staddur í siglingu á skemmtiferðaskipi um Karíbahafið. Hann segir það karabíska fara vel með sig. 

Palli er á ferðalagi með fjölskyldu sinni og hefur meðal annars synt með höfrungum í Mexíkó og heimsótt apa í Hondúras. Hann skellti sér líka í tannhvíttun um borð í skemmtiferðaskipinu og deildi einum 8 myndum af því ævintýri. 

Hann ætlar að eyða næstu vikum í sólinni en er væntanlegur til landsins fyrir jólavertíðina og spilar á tónleikum í lok nóvember. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert