Skemmtilegustu borgirnar í Bandaríkjunum

Las Vegas er skemmtilegasta borgin.
Las Vegas er skemmtilegasta borgin. mbl.is/Pexel

Það eru margir áhugaverðir staðir sem hægt er að heimsækja í Bandaríkjunum. Það er líka gaman að skoða landið út frá því hvar skemmtilegustu borgirnar eru. 

Í nýrri rannsókn frá WalletHub kemur fram að Las Vegas, Orlando og New York séu meðal skemmtilegustu borga í Bandaríkjunum. Rannsóknin byggist á upplýsingum um fjölda skemmtistaða, veitingastaða, tónleikastaða, verði í bíó, afgreiðslutíma brugghúsa og fleiru. 

Rannsóknin náði til 182 borga, þar af 150 fjölmennustu borganna auk tveggja næststærstu borganna í hverju ríki. Einkunn borganna tekur mið af þremur þáttum, skemmtun og afþreyingu, næturlífi og verðlagi.

Þetta eru 25 skemmtilegustu borgirnar í Bandaríkjunum.

  1. Las Vegas
  2. Orlando
  3. New York
  4. Miami
  5. Chicago
  6. Atlanta
  7. San Francisco
  8. Portland
  9. San Diego
  10. Los Angeles
  11. Austin
  12. New Orleans
  13. Honolulu
  14. Denver
  15. Washington, D.C.
  16. Tampa
  17. Seattle
  18. St. Louis
  19. Houston
  20. Philadelphia
  21. Cincinnati
  22. Salt Lake City
  23. San Antonio
  24. Fort Lauderdale
  25. Tucson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert