Helgarferðir til Bretlands vinsælastar hjá Íslendingum

London er vinsæll áfangastaður Íslendinga yfir vetrartímann.
London er vinsæll áfangastaður Íslendinga yfir vetrartímann. Skjáskot/Instagram

Helsti áfangastaður Íslendinga í nóvember og desember er höfuðborg Bretlands, London. Þetta kemur fram í könnun leitarvefjarins Dohop.is sem byggir gögnin á hótelbókunarkerfi sínu.

Skosku borgirnar Glasgow og Edinborg eru í öðru sæti yfir þær borgir sem Íslendingar vilja helst heimsækja yfir vetrartímann. Manchester-borg er svo í þriðja sæti. 

Að ferðast til Bretlands er fullkomið til þess að anda að sér jólunum og jafnvel kaupa jólagjafir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert