Ævintýralegur vetur í München

Að heimsækja smáhöllina Linderhof er eins og að stíga inn …
Að heimsækja smáhöllina Linderhof er eins og að stíga inn í draum. Að innan er höllin ævintýri líkust. Ljósmynd / Wikipedia – Pe-Sa (PD)

Það er ekki erfitt að heillast af töfrum Bæjaralands, í Suðaustur-Þýskalandi. Samt virðist oft eins og þessi hluti Evrópu falli í skuggann af nágrönnunum, og þótt straumur ferðamanna liggi t.d. til Prag eða Vínarborgar í austri, ellegar til Feneyja í suðri, eiga margir eftir að uppgötva alla þá kosti sem München býr yfir.

Það er gaman að heimsækja Bæjaraland á öllum árstímum en hægt er að mæla sérstaklega með ferð til München að vetri til, til þess ýmist að upplifa Októberfest eða njóta jólamarkaðanna og vetrarrómantíkurinnar í nóvember og desember. Fljúga má beint með Icelandair og tekur ekki nema þrjá tíma og þrjú korter að ferðast til þessarar borgar, þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi:

Miðborg München er afskaplega jólaleg, og ekki skemmir ráðhússklukkan fyrir …
Miðborg München er afskaplega jólaleg, og ekki skemmir ráðhússklukkan fyrir en þar dansa skrautlegar fígúrur nokkrum sinnum á dag, við bjölluspil. Ljósmynd / Flickr – Mark Pegrum (CC)

Farðu á jólamarkað í miðbænum

Í desember ætti vitaskuld að setja stefnuna á Marienplatz, en þar rís risastór ekta þýskur jólamarkaður sem iðar af lífi. Jólaglögg og alls kyns jólagóðgæti rennur ljúflega niður, og hægt að kaupa sígilt þýskt jólaskraut fyrir heimilið. Ráðhúsið stendur við Marienplatz; mikilfengleg bygging í ný-gotneskum stíl, með einstaklega fallegri „Glockenspiel“-klukku sem vaknar til lífs nokkrum sinnum á dag.

BMW Welt er risastór sýningarsalur þar sem skoða má allt …
BMW Welt er risastór sýningarsalur þar sem skoða má allt það sem bílarisinn framleiðir. Í næsta húsi er BMW-safnið. Ljósmynd / BMW Group

Kíktu á BMW-safnið

München er heimaborg bílaframleiðandans BMW og eins og vera ber hefur fyrirtækið innréttað bæði stórt og mikið safn, sem og risastóran sýningarsal fyrir nýju bílana. Í BMW Museum er saga fyrirtækisins rakin í merkilegum bifreiðum, og í BMW Welt er hægt að skoða bílaframboð allrar BMW-fjölskyldunnar, þar með talið Rolls-Royce og Mini.

Horfðu á Hnotubrjótinn

Óperuhúsið í München, Bayerische Staatsoper, þykir vera með þeim betri í heiminum. Mikill metnaður er lagður í dagskrána og helstu perlum óperu- og ballettbókmenntanna blandað saman við ný og spennandi verk. Eins og við er að búast er Hnotubrjóturinn áberandi í dagskrá desembermánaðar og þegar þetta er skrifað eru enn lausir miðar á nokkrar sýningar. Til að komast í bestu sætin þarf þó að kaupa miða með lengri fyrirvara, ellegar bíða við innganginn rétt fyrir sýningu og vona að pláss losni.

Óperuhúsið í München passar upp á fjölbreytnina í óperu- og …
Óperuhúsið í München passar upp á fjölbreytnina í óperu- og ballettsýningum. Hnotubrjóturinn er áberandi í aðdraganda jóla en það þarf að helst að panta miða með góðum fyrirvara. Ljósmynd / Bayerische Staatsoper – Wilfred Hösl

Upplifðu list Bláu riddaranna

München var þungamiðja annarra af tveimur meginfylkingum expressjónisma í þýskri málaralist. Bláu riddararnir, Der Blaue Reiter, mörkuðu djúp spor í listasöguna með fólki eins og Wassily Kandinsky og Gabriele Münther í broddi fylkingar, og upplagt að renna við í Lenbachhaus þar sem þessari merkilegu listrænu hreyfingu eru gerð góð skil.

Haltu út fyrir bæinn

Allt í kringum München má finna áhugaverða áfangastaði. Ber sérstaklega að nefna Neuschwanstein-kastala, sem er í um 1.40 klst. akstursfjarlægð, rétt við austurrísku landamærin, og sömuleiðis smáhöllina Linderhof sem er lítil perla á svipuðum slóðum. Þá er enginn hörgull af góðum skíðasvæðum syðst í Þýskalandi, og ef skíðin eða snjóbrettið eru með í för ætti að setja stefnuna á t.d. Alpsee-Grünten, Oberjoch og Karwendel þar sem finna má Dammkar-skíðabrekkuna sem ku vera sú lengsta í Þýskalandi; 7 km frá upphafi til enda.

Hvar á að gista?

Af mörgum ágætum kostum er rétt að vekja sérstaka athygli á Sofitel-hótelinu, sem er í fallegri byggingu við hlið aðallestarstöðvar borgarinnar. Hótelbyggingin er 120 ára gömul og hýsti áður starfsemi konunglegu bæversku póstþjónustunnar. Húsið var síðan tekið algjörlega í gegn á árunum 2002 til 2004 og breytt í lúxushótel.

Staðsetningin gæti varla verið betri, enda auðvelt að komast til og frá flugvellinum frá aðallestarstöðinni og miðbærinn í göngufæri. Gestir ættu m.a. að kíkja á sundlaugina í kjallara hótelsins, en hún er ólík öllum öðrum hótelsundlaugum og minnir helst á helli. Þá ættu þeir sem vilja vera í toppformi að athuga hvort ekki má bóka herbergi með hlaupabretti eða æfingahjóli, en finna má nokkrar slíkar svítur á hótelinu, með risastórum gluggum sem veita gott útsýni yfir þök og turna borgarinnar.

Blaðamaður fékk að gista á Sofitel Hotel Münich Bayerpost í boði Accor.

Mæla má með Sofitel hótelinu sem er rétt við aðal-lestarstöðina. …
Mæla má með Sofitel hótelinu sem er rétt við aðal-lestarstöðina. Byggingin var áður mikilvægasta pósthús Bæjaralands. Ljósmynd / Accor
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert