Hvers vegna ættir þú að fara til Madeira?

Ekki óraði mig fyrir því að hægt væri að upplifa ævintýraferð lífsins á eyjunni Madeira sem tilheyrir Portúgal. Þótt eyjan sé ekki stór þá hefur hún upp á að bjóða allskonar töfra. Ef þig langar hinsvegar bara á sápukúludiskó, í vatnsrennibrautagarða eða í verslunarferð þá er þetta ekki fríið sem þú átt að fara í.

Fyrir nokkrum árum ákváðum við maðurinn minn að sleppa jólagjöfunum til hvort annars og fara frekar í ferðalag saman. Gefa hvort öðru samveru í nokkra daga í stað veraldlegra hluta. Það hafa öll hjón gott af því að fá nokkra daga í friði þar sem hægt er að taka 12 tíma trúnó án þess að verða fyrir ónæði.

Pico Ruivo er mögnuð gönguleið. Takið eftir fólkinu sem er …
Pico Ruivo er mögnuð gönguleið. Takið eftir fólkinu sem er staðsett þarna á hryggnum. Ljósmynd/Unsplash

Þegar kom að því að velja áfangastaðinn vandaðist málið og því leituðum við til fjármálastjórans sem vinnur með manninum mínum. Sá ágæti maður er ekki bara góður í að reka ríkisstofnanir réttum megin við núllið heldur hefur hann næmt auga fyrir áhugaverðum stöðum og upplifunum. Hann elskar litlu hlutina í lífinu sem krydda tilveruna og sendi okkur beint til Madeira. Þegar við gúggluðum Madeira vissum við ekki neitt um þennan forvitnilega stað og bjuggumst því ekki við neinu. Gallinn við að fara til Madeira er að það er vesen að komast þangað og tekur langan tíma. Ef fólk ætlar að fara í nokkurra daga ferð er glatað að taka tvo daga af heildartímanum í ferðalög fram og til baka. Þess vegna hresstist ég töluvert þegar ég kom auga á það að Úrval Útsýn ætlar að vera með tvær ferðir til Madeira í maí. Í þessum ferðum er flogið beint og gist er á góðum hótelum. Það er nefnilega ekki alveg nóg að fara bara einu sinni til Madeira á lífsleiðinni. Fólki langar yfirleitt þangað aftur eftir fyrstu ferð.

Lítil glæpatíðni

Funchal heitir höfuðborg Madeira og er glæpatíðni þar lág og er heimilisleg stemning í forgrunni. Í miðbænum er fullt af veitingastöðum sem bjóða upp á ekta portúgalskan mat, góð kaffihús og er skemmtilegt að labba þar um. Í miðbænum er mikið af handverksverslunum og það er gaman að labba meðfram ströndinni og þurfa ekki að spá í það hvort maður sé að verða of seinn á fund. Ef fólk langar hinsvegar að upplifa meiri ævintýri og finnst gaman í fjallgöngu þá er Madeira einstakur staður. Pico Ruivo er til dæmis mögnuð 10,5 km gönguleið sem tekur fjóra tíma að ganga. Ég mæli eindregið með því að fólk fari með farastjóra og er eitt fyrirtæki, Walking with Emanuel, sérlega skemmtilegt. Fyrrnefndur Emanuel er um 70 ára og gengur alla daga vikunnar nema sunnudaga með ferðamenn og getur sagt endalausar sögur á leiðinni. Það er ekki dýrt að ferðast með honum og það hefur þá kosti að fólk er sótt upp að dyrum um morguninn og keyrt aftur heim að göngu lokinni. Það eina sem fólk þarf að hafa meðferðis eru hnetur, súkkulaði og nóg af vatni. Svona ganga tekur á og þarf fólk á öllum sínum krafti að halda.

En það er ekki bara gaman að labba í fjöllunum á Madeira. Það er algert ævintýri að labba um höfuðborgina Funchal sem er byggð í hlíð. Það er því svolítið eins og að labba nokkrar Esjur á dag að ganga þar um bæinn. Fyrir nútímafólk sem er allt of mikið í símanum og tölvunni og allt of stressað í ofanálag er himneskt að koma í rólegheit Madeira. Landsmenn virðast draga andann hægar og einhvern veginn sogast fólk inn í þann takt sem þar ríkir. Svo er eitthvað svo notalegt að geta bara sprangað um á strigaskóm, stuttbuxum og með bakpoka og notið þess að draga andann rólega.

Fegurð Madeira er einstök.
Fegurð Madeira er einstök.
Pico Ruivo er um fjögurra tíma gönguleið sem er töluvert …
Pico Ruivo er um fjögurra tíma gönguleið sem er töluvert krefjandi. Ljósmynd/Unsplash
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert