Best að eyða áramótunum í Reykjavík

Áramótin 1997-1998 í Reykjavík.
Áramótin 1997-1998 í Reykjavík. Árni Sæberg

Ferðasíðan Big 7 Travel hefur valið Reykjavík vera ákjósanlegustu borgina til þess að eyða áramótunum.

Niðurstaðan byggir á kosningu á meðal 1,5 milljón manns í Bandaríkjunum sem og könnunar á helstu áramótaviðburðum víða um heim. Í öðru sæti á lista Big 7 Travel var Koh Phangan í Taílandi og í þriðja sæti var Sydney í Ástralíu. 

Á listanum voru 50 borgir víða um heim og trónir íslenska höfuðborgin þar á toppnum. Í lýsingu Big 7 Travel segir: „Brennur víða í samfélaginu hefja áramótafögnuðinn í Reykjavík. Brennurnar gera þeir kleift að brenna í burtu öll þín vandræði á sama tíma og flugeldar lýsa upp stjörnum prýddan himininn fyrir ofan þig. Njóttu einstakrar menningar með stjörnur í augunum þegar öll borgin lýsist upp.“

Efstu 10 sætin á lista Big 7 Travel

  1. Reykjavík, Íslandi
  2. Koh Phangan, Taílandi
  3. Sydney, Ástralíu
  4. New York, Bandaríkjunum
  5. Valparasío, Síle
  6. Vancouver, Kanada
  7. San Juan, Púertó Rico
  8. Prag, Tékklandi
  9. Rio de Janeiro, Brasilíu
  10. Höfðaborg, Suður-Afríku
Áramót í Reykjavík 2018-2019.
Áramót í Reykjavík 2018-2019.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert