Besta ferðaráðið frá Nicole Kidman

Nicole Kidman mælir með spjaldtölvum í flugvélina.
Nicole Kidman mælir með spjaldtölvum í flugvélina. AFP

Leikkonan Connie Britton fékk frábært ferðaráð frá vinkonu sinni Nicole Kidman. Britton greindi frá ferðaráðinu í útvarpsþætti Andy Cohen fyrr á árinu að því er fram kemur á vef Daily Mail. Britton ættleiddi dreng árið 2011 og kaupir sér frið í flugvélum með spjaldtölvu að hætti Nicole Kidman. 

„Besta ráð sem ég hef nokkurn tímann fengið varðandi það að ferðast með börn var frá Nicole Kidman,“ sagði Britton. Sagði Britton að Kidman væri afar ströng þegar kæmi að snjalltækjum en hún leyfði þau við sérstök tilefni eins og á ferðalögum. 

Britton sagði að dætur Kidman ættu spjaldtölvur sem þær fengu aðeins að nota í flugvélum. Britton tók upp sömu reglu. 

„Hann er í iPadnum. Við tölum ekki saman. Við tölum ekki saman alla flugferðina. Það er í alvöru besta ráð sem ég hef fengið.“

Connie Britton fékk frábært ferðaráð frá vinkonu sinni Nicole Kidman.
Connie Britton fékk frábært ferðaráð frá vinkonu sinni Nicole Kidman. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert