Sunneva Eir með Bjarna Ben. á Flórída

Bjarni Benediktsson, Benedikt Bjarnason og Sunneva Eir Einarsdóttir eru á …
Bjarni Benediktsson, Benedikt Bjarnason og Sunneva Eir Einarsdóttir eru á ferð og flugi. Samsett mynd

Ein vinsælasta instagramstjarna Íslands, Sunneva Eir Einarsdóttir, er stödd erlendis. Sunneva flaug út á heitan stað fyrir helgi en ekki þykir ólíklegt að hún eyði áramótunum með kærastanum, Benedikt Bjarnasyni, á Flórída. Benedikt er sonur Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra. 

Í gær, mánudag, birti Sunneva myndband á Instgram þar sem sást glitta í Benedikt. Fjármálaráðherra var einnig staddur erlendis samkvæmt heimildum ferðavefjar mbl.is. Hann og fjölskylda hans eru ekki óvön að dvelja á Flórída þar sem foreldrar Bjarna eiga einbýlishús þar. 

Á sunnudaginn var Sunneva meðal annars í sólbaði í 26 stiga hita. Sunneva, sem er dugleg að sýna frá lífi sínu á Instagram, hefur passað sig að sýna ekki mikið frá ferðafélögum sínum á samfélagsmiðlinum. Benedikt hefur birt myndir í sögu á Instagram af golfbíl, golfvelli og krókódíl. Nóg er af góðum golfvöllum á Flórída og eitthvað af krókódílum.

View this post on Instagram

1, 2, 3, 4 I declare a thumb war 😼 next up —> vacay ✈️

A post shared by Sunneva Eir Einarsdóttir🌸 (@sunnevaeinarss) on Dec 26, 2019 at 9:16am PST

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Freysteinn Guðmundur Jónsson: ICEHOT
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert