„Íslendingasamfélagið á Tenerife harmi slegið“

Guðmundur Guðbjartsson rak veitingastaðinn Bar-Inn í Los Cristianos.
Guðmundur Guðbjartsson rak veitingastaðinn Bar-Inn í Los Cristianos. Bar-inn

Guðmundur Guðbjartsson, veitingamaður á Tenerife, varð bráðkvaddur 21. janúar síðastliðinn, aðeins 53 ára að aldri. 

Guðmundur rak Bar-Inn í Los Cristianos á Tenerife við góðan orðstír ásamt eiginkonu sinni Ingifríði Rögnu Skúladóttur. Anna Kristjánsdóttir vélstjóri minntist Guðmundar í færslu sinni á Facebook í dag. 

„Hann hafði kennt sér meins á mánudagskvöldið og um nóttina, en taldi sig eitthvað hressari á þriðjudagsmorguninn þó ekki nóg til að mæta á Bar-Inn til vinnu fyrir leik Íslands og Noregs. Inga konan hans stóð því ein vaktina meðan á leiknum stóð, en er hún hringdi heim að leik loknum og hann svaraði ekki lokaði hún Barnum og flýtti sér heim þar sem hún fann hann örendan.

Guðmundur hafði þjáðst af sykursýki 1 og var meðal annars á sjúkrahúsi í Santa Cruz síðastliðið haust vegna þessa sjúkdóms.

Íslendingasamfélagið hér á Tenerife er harmi slegið vegna andláts Gumma og vil ég votta Ingu konu hans og allri fjölskyldu þeirra og vinum á Íslandi samúð mína.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert