London að hætti Alexöndru og Móeiðar

Alexandra Helga og Móeiður á hinum vinsæla Sketch í Lundúnum …
Alexandra Helga og Móeiður á hinum vinsæla Sketch í Lundúnum fyrir áramót. Skjáskot/Instagram

Það getur verið erfitt að velja veitingastaði erlendis. Fólk sem er á leiðinni til Lundúna ætti að taka þær Alexöndru Helgu Ívarsdóttur og Móeiði Lárusdóttur sér til fyrirmyndar. Konurnar sem eiga það sameiginlegt að vera í sambandi með íslenskum atvinnumönnum í fótbolta kunna svo sannarlega að velja veitingastaði í borginni. 

Óhætt er að treysta á veitingastaði sem Alexandra Helga borðar á enda kann hún vel á Lundúnaborg auk þess sem hún hefur mentað sig í matreiðslu og er þekkt fyrir góðan mat. 

Rósir á veitingastaðnum Ours.
Rósir á veitingastaðnum Ours. Ljósmynd/Ours

Þær stöllur voru staddar í Lundúnum í vikunni og borðuðu á veitingastaðnum Ours sem staðsettur er í Knightsbridge í Vestur-Lundúnum. Veitingastaðurinn býður upp á kvöldverð en einnig er hægt að fá sér girnilegan dögurð á laugardögum. Fallegar innréttingar og einstök rósagöng skapa skemmtilega stemmingu. Staðurinn er kjörinn fyrir fólk sem finnst gaman að birta flottar myndir á Instagram og borða góðan mat. 

Rósagöng setja svip á Ours í London.
Rósagöng setja svip á Ours í London. ljósmynd/Ours

Ekki er langt síðan þær Alexandra og Móeiður borðuðu á einum heitasta Instagram-stað Englands. Veitingastaðnum Sketch sem einnig er í vesturhluta Lundúnaborgar. 

Gott er að panta borð á þessum stöðum. Fólk sem fer á Ours ætti líka að mæta vel til fara en fólki er bent á að mæta í fínum hversdagslegum fatnaði þegar það borðar á veitingastaðnum. Fólk sem er í íþróttafötum eða stuttbuxum fær ekki endilega aðgang að staðnum. 

View this post on Instagram

Þarf að æfa þessa pósu betur, held ekki í klofið á mer 🙃

A post shared by Móeiður Lárusdóttir (@moeidur) on Jan 23, 2020 at 1:53pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert