Hótel Helgafell er risið á Spáni

Ómar Þór Ómarsson hefur ásamt föður sínum byggt upp íbúðahótel …
Ómar Þór Ómarsson hefur ásamt föður sínum byggt upp íbúðahótel í fallegum bæ nærri flugvellinum í Alicante. Ljósmynd/Kristinn Magnússon

Við setjumst niður yfir rjúkandi heitum kaffibolla sem Ómar Þór Ómarsson hefur galdrað fram úr stórri kaffivél af ítalskri gerð. Næsta vers er að bera saman bækurnar um hvernig við mokuðum bílana út í morgunsárið. Það var ekki einfalt eftir snjókomu næturinnar og skafrenning og sannkallaður höfuðverkur fyrir ungt fólk með börn að koma þeim á leikskólann í tíma, áður en vinnudagurinn hefst.

Hótel Helgafell er reisulegt og glænýtt hús í bænum Quesada …
Hótel Helgafell er reisulegt og glænýtt hús í bænum Quesada á Spáni.

En það er ekki kaffibollinn sem bræðir minningarnar um skaflana og ófærðina. Á síðustu árum hefur Ómar Þór, í samstarfi við föður sinn, Ómar Kristjánsson, unnið að uppbyggingu hótelíbúða á einstökum stað á Spáni. Upphaf verkefnisins má rekja til heimsóknar þeirra þangað. Lífið tekur oft óvænta stefnu.

Síðastliðið haust tóku þeir í gagnið átta íbúða hús sem þeir reistu í bænum Quesada á suðurhluta Spánar. Síðan þá hafa þeir boðið Íslendingum að kynnast staðnum með dvöl í þessum einstaka stað og fyrirtækið nefna þeir Hótel Helgafell.

Útsýnið af svölunum á efri hæð er ekki af verri …
Útsýnið af svölunum á efri hæð er ekki af verri endanum.

Húsið nefnist Helgafell

Við ákváðum að nefna þetta verkefni Helgafell með vísan til fjallsins helga á Snæfellsnesi. Okkur feðgum þykir mjög vænt um það og þess vegna við hæfi að nefna þetta verkefni eftir því, segir Ómar Þór.

Quesada er um 25 þúsund manna bær á suðurhluta Spánar, spölkorn frá flugvellinum í Alicante og fleiri stöðum sem eru Íslendingum að góðu kunnir.

„Þessi bær er um hálftíma leið frá Alicante og Torrevieja. Þetta er hins vegar að mörgu leyti rólegra svæði en þessir þekktu staðir og mannfjöldinn ekki eins mikill,“ segir Ómar Þór.

Ómar Þór kann einkar vel við sig í Quesada og …
Ómar Þór kann einkar vel við sig í Quesada og hugsar þangað þegar veturinn gerist hvað þyngstur hér heima á fróni.

Quesada er oft nefndur bærinn við hvítu ströndina og það er réttnefni. Eftir um tíu mínútna akstur frá Helgafelli er komið að strönd með hvítum sandi og þar finnst ferðalöngum en ekki síst Spánverjum gott að venja komur sínar.

„Okkur finnst það einmitt meðmæli með staðnum að Spánverjar venja komur sínar til bæjarins. Þeir leita ekki í allan mannfjöldann þar sem ferðaþjónustan er með metumsvif. Í Quesada er hægt að sækja ákveðna kyrrð sem ekki er að finna víða annars staðar þarna.“

Einstök veðurskilyrði

En Ómar Þór segir að það sé meira en kyrrðin sem fólk leiti í.

„Veðurskilyrði þarna eru í raun ótrúleg. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur meira að segja vottað það á einhverjum tímapunkti. Í Quesada eru 320 sólardagar á ári og loftslagið er ótrúlegt. Það er samspil hafgolunnar og fjallanna en ekki síst vatnsins La Laguna Rosa sem er salt, sem gerir skilyrðin þarna alveg einstök. Vatnið er raunar dálítið eins og Bláa lónið því þangað leitar fólk með gigt og ýmsa húðsjúkdóma eftir því að fá bót meina sinna.“

En það voru einmitt þessi sérstöku skilyrði sem heilluðu Ómar Þór og föður hans fyrir tæpum fjórum árum.

„Við komum á þennan stað og urðum strax heillaðir af þessu svæði. Fegurðin ótrúleg og mjög þægilegt að vera þarna. Við ákváðum því að kaupa íbúð fyrir okkur til þess að geta komið hingað, rétt eins og margir Íslendingar hafa kosið að gera á síðustu áratugum á Spáni. Í kjölfarið keyptum við tvær íbúðir í viðbót og þar vakti tvennt fyrir okkur. Annars vegar að geta tekið á móti fjölskyldunni þegar þannig stæði á en hún er fjölmenn. Hins vegar að leigja íbúðirnar út og sjá hvort það væri rekstrargrundvöllur fyrir slíkri starfsemi.“

Í íbúðunum eru þrjú svefnherbergi en einnig er í stofunni …
Í íbúðunum eru þrjú svefnherbergi en einnig er í stofunni góður svefnsófi og sé hann nýttur er svefnpláss fyrir allt að 8 manns.

Allir heillaðir af svæðinu

Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Vinir og kunningjar sýndu þessu mikinn áhuga. Það kom þeim feðgum hins vegar meira á óvart að fólk, alls ókunnugt, tók að hafa samband og sýndi áhuga á íbúðunum. Það var fólk sem hafði áhuga á að dvelja um skemmri tíma á svæðinu en einnig hjón og fjölskyldur sem veltu fyrir sér að fjárfesta í íbúð á svæðinu.

„Þetta sannfærði okkur um að það væri eftirspurn eftir þessari þjónustu. Við höfðum komist í samband við stórt fjölskyldufyrirtæki þegar við keyptum fyrstu íbúðirnar en það er verktakafyrirtæki sem nefnist Euro Marina. Þau kynntu fyrir okkur ýmsa möguleika á svæðinu og á einum tímapunkti fengum við kynningu á átta íbúða húsi á besta stað. Eftir að hafa skoðað teikningar og hönnun hússins, ásamt öðrum möguleikum sem það hafði upp á að bjóða gengum við til samninga og keyptum heilt hús með átta íbúðum,“ segir Ómar Þór.

Framkvæmdir tóku um eitt ár og í september var húsið tekið í notkun.

„Þetta hús kemur mjög vel út. Íbúðirnar eru um 100 fermetrar hver og fólk getur valið milli þess að vera á jarðhæð eða annarri hæð. Þeir sem velja fyrri kostinn geta gengið beint út í garð sem þykir oft kostur fyrir fólk með lítil börn. Á efri hæðinni eru svo íbúðir með góðum svölum.“

Íbúðum á neðri hæð fylgir góð aðstaða sem er afgirt …
Íbúðum á neðri hæð fylgir góð aðstaða sem er afgirt og sérstaklega hentug fyrir barnafólk.

Í íbúðunum eru þrjú svefnherbergi og eitt þeirra er sérstakt hjónaherbergi með einkabaðherbergi. Þá er önnur aðstaða þannig að fólk á gott með að halda kostnaði við ferðalagið í lágmarki ef vilji er til. Þá er á húsinu þakgarður þar sem hægt er að hvíla lúin bein og láta líða úr sér.

„Þarna er líka fullkomin eldhúsaðstaða sem einfalt er að nýta sér. Stofa með góðu sjónvarpi þar sem jafnvel er hægt að stilla inn á RÚV ef fólk fær heimþrá,“ segir Ómar Þór og brosir í kampinn.

La Laguna Rosa er saltvatn inni í landi og talið …
La Laguna Rosa er saltvatn inni í landi og talið búa yfir lækningamætti.

Gott samstarf við heimamenn

Spurður út í samstarfið við verktakann segir Ómar að það hafi allt gengið snuðrulaust.

„Það má segja að fjölskyldurnar séu orðnar góðir vinir og þau hafa m.a. heimsótt okkur hingað til Íslands. Það er líka gaman að sjá hversu vel er vandað til verka. Hér heima er oft talað um að á Spáni séu ekki mikil gæði í byggingariðnaðinum. Þessi hús eru hins vegar byggð eftir ströngustu gæða- og öryggiskröfum og það finnst okkur skipta miklu máli.“

Hann bendir á að í fimm til sjö mínútna göngufæri eru stórmarkaðir á borð við Lidl, Aldi og Consum sem hægt er að nýta.

„Þar er vöruúrvalið ótrúlega gott og verðlagið mjög hagstætt einnig. Skinkur, ostar, brauð og hvað sem hugurinn girnist. Þá er úrvalið af víni, ekki síst spænsku, alveg frábært og verðið allt annað en við þekkjum heima,“ segir Ómar og bætir við: „Ég dvaldi þarna fyrr í vetur ásamt konu minni og syni og við vorum mjög dugleg að elda heima. Það var mjög notalegt og hagkvæmt en það breytir ekki þeirri staðreynd að í námunda við húsið eru einnig frábærir veitingastaðir sem bjóða mikil gæði á góðu verði. Það undirstrikar einfaldlega að þarna er hægt að haga hlutunum eftir eigin höfði.“

Öll aðstaða er af nýjustu gerð og við framkvæmdir var …
Öll aðstaða er af nýjustu gerð og við framkvæmdir var ýtrustu öryggis- og gæðastöðlum fylgt.

Gott aðgengi fyrir alla

Aðstaðan er nútímaleg að sögn Ómars Þórs og þannig er lyfta í húsinu þótt það sé aðeins upp á tvær hæðir.

„Við leggjum áherslu á að allir geti nýtt sér þessa aðstöðu, óháð aldri eða líkamlegu atgervi. Sumar íbúðirnar eru þannig útbúnar að fólk með sérþarfir getur auðveldlega dvalið þar um lengri eða skemmri tíma.“

Helgafell samanstendur, eins og áður sagði af átta íbúðum, en er þó hluti af stærri einingu. Fimm hús af þessu tagi mynda hring um sundlaugaraðstöðu sem Ómar Þór segir lykil að miklum þægindum fyrir þá sem dvelja í Helgafelli.

„Það er gott að skella sér í laugina og taka sundsprett eða kæla sig í hitanum þegar svo ber undir. Þarna er einstaklega gott að vera með börn og útsýni yfir allt svæðið. Ef maður vill meiri kyrrð er þakgarðurinn hins vegar mjög sniðugur.“

Hann segir að þótt Quesada sé ekki nema 25 þúsund manna bæjarfélag sé alls kyns afþreying innan seilingar.

„Þarna er gott að komast í góðar gönguferðir, hjólahópar geta farið í góðar ferðir út frá bænum og svo er ströndin hvíta alveg einstök. Það er líka stutt í vatnsrennibrautagarð, nokkra glæsilega golfvelli, einstakan dýragarð og áhugafólk um keilu getur meira að segja fundið góðan stað í nágrenninu. Þá er mikið úrval af útisvæðum sem hægt er að nýta til styttri og lengri göngutúra“

Þjónustan á íslensku

Ómar Þór segir að hugmyndin að baki þjónustunni sé sú að þarna geti íslenskar fjölskyldur fundið sér afdrep til afslöppunar og góðrar afþreyingar. Hluti af hugmyndinni er einnig sú að fólk geti notið þjónustu á íslensku.

„Það finnst ekki öllum gott að þurfa að tjá sig á ensku eða spænsku. Þá er mikilvægt að þjónustan sé á íslensku. Við erum með mjög góðan mann á svæðinu sem hægt er að leita til ef eitthvað er og við höfum fundið fyrir því að sú þjónusta er mjög vel þegin.“

Ómar Þór segir það sama eiga við þegar fólk kynnir sér þjónustuna en heimasíða fyrirtækisins, helgafellrental.is, er á íslensku.

„Þar getur fólk ekki aðeins nálgast upplýsingar um íbúðirnar, myndir og annað slíkt heldur höfum við sett þar inn upplýsingar um nærumhverfið, afþreyingarmöguleika og annað slíkt. Þegar fólk leigir íbúðir eins og þessar eru upplýsingar oft bara á ensku og það er ekki eins aðgengilegt.“

Hann segir að það hafi einnig verið markmið verkefnisins að bjóða þjónustuna í Helgafelli á hagstæðu verði. Spurður út í verðið á henni segir hann að það sé nokkuð breytilegt milli árstíða.

„Yfir vetrarmánuðina kostar nóttinn 60 evrur eða ríflega 8 þúsund krónur. Yfir sumarmánuðina hækkar verðið upp í kringum 14 þúsund krónur. Það er hins vegar ekki mikið þegar litið er til þess að þetta er splunkunýtt húsnæði og að í hverri íbúð geta 6 til 8 manns dvalið með góðu móti. Við teljum alla vega að þetta sé mjög samkeppnishæft og gott verð miðað við aðstöðuna, svæðið og alla þá afþreyingarmöguleika sem í boði eru í næsta nágrenni,“ segir Ómar Þór.

Flugframboðið nægt

Miklar sviptingar hafa verið á flugmarkaðnum síðustu misseri og talsvert dró úr flugframboði til Spánar í kjölfar gjaldþrots WOW air. Ómar Þór segir að þrátt fyrir það sé tiltölulega auðvelt að komast í beinu flugi til Alicante.

„Norwegian hefur haldið uppi áætlunarflugi þangað allt árið um kring og fleiri flugfélög hafa bæst við þegar nær dregur sumri. Það á m.a. við um Icelandair. Svo eigum við eftir að sjá hvað verður með önnur flugfélög. Þegar áætlanir Play voru kynntar undir lok síðasta árs var greint frá því að félagið hygðist fljúga þangað. Hvort sem af því verður eða ekki þá sé ég ekki betur en að það sé nægt framboð á tiltölulega ódýru flugi þangað suður,“ segir Ómar Þór.

Þegar líður að lokum samtalsins verður honum litið út um gluggann þar sem snjókófið byrgir mönnum sýn.

„Það er ekki laust við að maður reyni að koma sér sjálfur til Quesada ef þetta heldur svona áfram,“ segir Ómar Þór. Miðað við veðurspá næstu dagana er ekki ósennilegt að hann láti af því verða, nema það rofi skyndilega til.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert