Nutu Valentínusardagsins í Cabo

Kim Kardashian West og Kanye West eyddu Valentínusarhelginni í Cabo.
Kim Kardashian West og Kanye West eyddu Valentínusarhelginni í Cabo. AFP

Listamaðurinn Kanye West kann svo sannarlega að koma eiginkonu sinni, Kim Kardashian West á óvart. Á Valentínusardaginn bauð hann henni í rómantíska ferð til Cabo San Lucas í Mexíkó. 

Kardashian West birti myndir af ótrúlega fallegu útsýni á Instagram á laugardag. Cabo San Lucas er á syðsta hluta Baja California-skagans sem er eins konar framlenging á Kaliforníu en þó í Mexíkó. 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem West kemur eiginkonu sinni á óvart á Valentínusardaginn en í fyrra fékk hann saxófónleikarann Kenny G til að spila á heimili þeirra. Kardashian West deildi þá myndbandi af Kenny G á heimili þeirra sem var fyllt af hvítum, bleikum og rauðum rósum. 

Útsýnið er magnað í Cabo.
Útsýnið er magnað í Cabo. Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert