Umdeildar leggingsbuxur vinsælar í flugið

Vinsælt er að ferðast í leggings.
Vinsælt er að ferðast í leggings. mbl.is/Colourbox

Leggingsbuxur hafa sjaldan þótt flottar á meðal tískuspekúlanta. Þrátt fyrir það eru þessar umdeildu buxur afar vinsælar meðal ferðalanga. Könnun sem vefurinn Refinery29 gerði á meðal notenda sinna sýndi að fatategundin er sú vinsælasta á ferðlögum. 

Alls 42 prósent þeirra sem tóku þátt í könnuninni völdu að ferðast í leggingsbuxum. Einnig kusu margir sem tóku þátt í könnuninni að ferðast í síðum kjólum eða víðum millisíðum pilsum. 

Engar stórfurðulegar niðurstöður komu fram í óformlegri könnun þeirra. Voru strigaskór og sandalar til að mynda vinsælasti skóbúnaðurinn. Merki sem oft voru nefnd voru merki á borð við Converse og Levi's.

strigaskór eru vinsælir á ferðalögum.
strigaskór eru vinsælir á ferðalögum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert