Neyðarútgangur opnaðist við lendingu

Neyðarútgangurinn opnaðist skömmu eftir lendingu.
Neyðarútgangurinn opnaðist skömmu eftir lendingu. Skjáskot/Twitter

Neyðarútgangur í vél Pakistan International Airlines opnaðist við lendingu í Sukkur í Pakistan í gær. Vélin kom til Sukkur frá Islamabad. Enginn slasaðist og komust allir heilir á húfi frá borði.

Hurðin brotnaði af hjörunum og í myndbandi á YouTube má sjá hvar hurðin er opin á meðan vélin keyrir um völlinn eftir lendingu. 

„Farþegi lyfti óvart handfanginu við lendingu sem olli því að hurðin opnaðist. Við höfum hafið rannsókn á tildrögum slyssins,“ sagði talsmaður flugfélagsins. 

Baráttukonan Fahmida Iqbal Khan var um borð í vélinni og tísti um atvikið stuttu eftir að það varð. „Hefði þetta gerst nokkrum sekúndum áður en við lentum, hefðum við orðið að fortíð og nöfn okkar á meðal þeirra sem týndu lífi sínu í flugslysi,“ skrifaði Khan á Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert