Kynna nýtt nafn á ferðamannaleið um Vestfirði

Nýtt merki Vestfjarðaleiðarinnar.
Nýtt merki Vestfjarðaleiðarinnar. Ljósmynd/Vestfjarðastofa.

Í síðustu viku var hulunni svipt af nýju nafni og merki ferðamannaleiðar sem liggur um Vestfirði. Leiðin hefur fengið nafnið Vestfjarðaleiðin eða á ensku The Westfjords Way. 

Á vef Vestfjarðastofu segir að vinna við þróun ferðamannaleiðarinnar hafi verið í gangi í rúmlega eitt ár og sé samstarfsverkefni Vestfjarðastofu og Vesturlandsstofu. Leiðin hefur gengið undir vinnuheitinu Hringvegur 2. Mörkunaráætlun, nafn og merki var unnið af alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu Cohn & Wolfe á Íslandi en vinna við þróun leiðarinnar er unnin í samstarfi við breska ráðgjafafyrirtækið Blue Sail.

Leiðin er um 950 kílómetra löng og liggur í gegnum átta sveitarfélög á Vestufjörðum og Dalabyggð á Vesturlandi. 

„Þetta er í ákveðnum skilningi kalt ferðaþjónustusvæði, en það á mikið inni og ljóst að Vestfjarðaleiðin verður öflugur segull fyrir svæðið. Nú þegar hefur skapast töluverður áhugi fyrir leiðinni, bæði hjá erlendum blaðamönnum og ferðaheildsölum,“ segir Díana Jóhannsdóttir, sviðsstjóri hjá Vestfjarðastofu, í viðtali á vef fyrirtækisins. 

Lagt er upp með að Vestfjarðaleiðin verði aðdráttarafl fyrir svæðið allt árið um kring en fyrsti áfangi þess verður opnun Dýrafjarðarganga, en í framhaldi af því er gert ráð fyrir vinnu við heilsársveg um Dynjandisheiði. Vestfjarðaleiðin verður formlega opnuð samhliða Dýrafjarðargöngum, sem reiknað er með að opni um miðjan september þessa árs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert