Þóra Björg Hallgrímsdóttir segir að á miðjum aldri hafi fjölskyldufólk tíma fyrir æfingar og þá ef til vill efni á að kaupa allan þann búnað sem þarf í útivistarævintýri á borði við Landvættina.
Þóra Björg Hallgrímsdóttir er fjögurra barna móðir og mikil útivistarkona. Hún er gift Tjörva Einarssyni og saman deila þau áhuga sínum á útivist. Auk barnanna sem eru á aldrinum 13-26 ára eiga þau sex ára barnabarn.
„Það er stórkostlegt að eiga stóra fjölskyldu og ég elska að fylgjast með systkinasambandi þeirra þróast. Sjá hvernig þau styrkja hvert annað, gefa ráð sín á milli og auðvitað stríða hvert öðru og vinna úr árekstrum.“
Hver er upplifun þín af því að vera framakona með börn?
„Upplifun mín er sú að það eru engar einfaldar töfralausnir til. Ég mæli með skipulagningu og svo kannski hraðri endurskipulagningu þegar þess gerist þörf. Það er svo mikil jafnvægislist að láta stóra fjölskyldu ganga upp með útivinnandi foreldra í krefjandi störfum og jafnvel í námi samhliða. Það er auðvitað alltaf eitthvað sem kemur upp á og þá þarf að bregðast við og forgangsraða. Ég er svo heppin að tengdamamma mín var stoð mín og stytta þegar mest var að gera. Ef hennar nyti ekki við hefði ég ekki getað farið í MBA-nám né sinnt vinnu eins og ég gerði þegar stelpurnar voru litlar. Enda á hún dásamlegt samband við börnin mín. Hún er mér mikil fyrirmynd og ég á henni mikið að þakka. Ef ég ætti að gefa eitthvað eitt ráð þessu tengt er það að þiggja þá hjálp sem býðst og vera óhrædd að biðja um aðstoð þegar álagspunktar koma.“
Í vinnu Þóru Bjargar snýst veröldin mikið um tækni og hagræðingu, m.a. í skólastarfi landsmanna.
„Ég er með yfirumsjón með Apple Education og er að kynna fyrir kennurum, stjórnendum menntastofnana og nemendum kosti þess að nýta sér Apple-vörur og -forrit í námi og kennslu. Mér þykir ótrúlega gaman að heimsækja skóla og kennara og sjá hvað skólastarfið er öflugt og hvað tæknin undir leiðsögn kennarana getur breytt miklu og aukið möguleika nemenda til sköpunar til muna.
Ég kláraði félagsfræði frá Háskóla Íslands árið 2003. Eftir Menntaskólann í Reykjavík vann ég fyrst í eitt ár og ákvað svo að skrá mig í félagsfræðina og tók atvinnulífsfræði sem aukagrein og einingar í viðskiptafræði með. Það jók á fjölbreytileika námsins. Ég fór svo ekki í meistaranám fyrr en 2012 þegar ég skráði mig í MBA-námið í Háskólanum í Reykjavík. Það var mjög skemmtilegur tími og námið fjölbreytt og áhugavert. Planið var reyndar alltaf að fara út í meistaranám en á þeim tíma var eiginmaður minn í draumavinnunni sinni og því varð niðurstaðan sú að fara í Háskólann í Reykjavík, þar sem flestir kennararnir voru erlendir. Ég sé ekki eftir því, námið var frábært og ég eignaðist afar góða vini sem ég er enn í góðu og reglulegu sambandi við.“
Þóra Björg er á því að mikil sjálfsvirðing sé fólgin í því að eiga áhugamál og sinna þeim.
„Áhugamálin eru ansi mörg og mér finnst gaman að prófa nýja hluti og reyna á mig. Áhugamál mín þessa dagana snúast mikið um útiveru, eins og gönguskíði, fjallahlaup, fjallahjólreiðar og sund. Ég ætla að reyna við Landvætti á þessu ári og undirbúningur að því er hafinn. Samhliða þessu get ég líka sinnt öðru áhugamáli sem er hljóðbækur; mér finnst þær æðislegar og hlusta á 3-5 bækur á mánuði.“
Þóra Björg segir það rífa hamingjustuðulinn upp að fylgjast með börnunum sínum vaxa og dafna. En það er ekki nóg eitt og sér.
„Ég er líka búin að læra hversu mikilvægt er að sinna sjálfri mér og gefa mér tíma líka, að vera ekki einungis eiginkona eða foreldri. Ég finn hvað útivera gefur mér ofsalega mikið og gerir mikið fyrir geðið. Þegar ég þarf virkilega að ná áttum og orkunni upp leita ég mest í hlaupin. Þá fer ég til dæmis að Helgafelli, klifra upp og niður og svo til baka. Það er mikið orkuskot einhvern veginn. Nú orðið finnst mér líka gott að gera þetta í alls kyns veðrum, en ekki bara í sól og logni. Að vera aðeins veðurbarin þegar ég kem aftur heim er bara kostur. Síðan er það auðvitað að rækta sambandið við vinina, það veitir mér mikla ánægju. Að eiga góða vini í gleði og sorg er verðmætt og eins að styðja við þá sem manni þykir vænt um.“
Þegar kemur að draumalífinu, einhverju sem hún væri að gera ef peningar væru engin fyrirstaða, segir hún að ferðalög yrðu ofarlega á baugi.
„Mig hefur alltaf langað til að ferðast meira um heiminn. Fara á fjarlæga staði og verja smá tíma þar en ekki bara þeim sem hefðbundnir orlofsdagar bjóða upp á. Læra af innfæddum og láta gott af mér leiða.“
Hefur þú sótt námskeið eða gert eitthvað út fyrir kassann sem þú mælir með að aðrir skoði?
„Já, ég fór á frábært námskeið hjá Náttúruhlaupum sem ég lærði helling af og fór fyrir vikið margar nýjar hlaupaleiðir og engar þeirra á malbiki. Síðastliðið haust skráði ég mig í Ferðafélag Íslands og er í Landvættaprógramminu þess. Það er stórkostleg áskorun. Ég er t.d. núna skráð í 50 km skíðagöngukeppni en hef alls farið fimm sinnum á gönguskíði. En þetta er skemmtilegt og það er dásamlegt að reyna svona á sig og finna hvað ég get.“
Áttu góða sögu af þér í vinnunni?
„Sem stendur er ég í hótelbókunarbanni. Ég hef iðulega tekið að mér að bóka hótel þegar við þurfum að ferðast vegna vinnu og haft allt klappað og klárt á 10 mínútum. En núna hef ég misst þau réttindi, þar sem ég hef ítrekað verið að bóka arfaslæm hótel á vafasömum stöðum og vinnufélagarnir hafa kunnað mér litlar þakkir fyrir.“
Hvað breytist með aldrinum?
„Þegar börnin eldast og verða meira sjálfbjarga breytist svo mikið og frítími eykst til muna. Fjölskyldulífið breyttist svo mikið og svo hratt að mér finnst frítími stundum verða að tómarúmi. Ég þurfti dálítið að meðtaka þennan nýja veruleika og tók meðvitaða ákvörðun um að nýta mér þennan nýfengna tíma til að vaxa, prófa nýja hluti og fara út fyrir rammann. Ég segi sjálf að það er ekkert meira miðaldra en að skrá sig í Landvættina en það er líka vegna þess að þá fyrst hefur fjölskyldufólk tíma fyrir æfingar og kannski efni á að kaupa allan þann búnað sem þarf í þetta ævintýri. Nú elska ég að eiga þennan tíma til að geta gefið sjálfri mér og upplifað ný ævintýri.“