Reyndu að rukka fyrir neikvæða umsögn

Hótelið hefur lokað tímabundið.
Hótelið hefur lokað tímabundið. skjáskot/News.com.au

Vegahótel í Ástralíu reyndi að rukka gest sinn um 50 ástralska dali fyrir að gefa neikvæða umsögn um hótelið á Booking.com. 

Ocean View Motel í Mollymook í Nýju Suður-Wales bætti upphæðinni við reikning gestanna með skýringu um ranga umsögn. 

Vegahótelinu hefur verið lokað tímabundið vegna neikvæðrar umfjöllunar um hótelið samkvæmt news.com.au

Eigendur vegahótelsins sögðu í viðtali við miðilinn að þau hefðu fengið hótanir símleiðis og gervibókanir eftir að gesturinn sem gaf neikvæðu umsögnina birti mynd af reikningnum. 

Gesturinn virðist þó ekki hafa verið mjög neikvæður í garð hótelsins heldur gaf hann því einkunnina 6 af 10 mögulegum og skrifaði að í húsinu hefði verið ansi hljóðbært. Hann segir að eftir að hann birti umsögnina hafi hann fengið reikning upp á 50 ástralska dali. Hann hefur fengið endurgreitt. 

Ocean View Motel hefur nú verið fjarlægt af bókunarsíðu Booking.com.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert