Lögreglan rekur fólk inn ef það er á ferli á Tenerife

Jóhanna og Svali eru búsett á Tenerife.
Jóhanna og Svali eru búsett á Tenerife.

Sigvaldi Kaldalóns eða Svali eins og hann er kallaður flutti til Tenerife fyrir tveimur árum. Hann greinir frá því á síðu sinni að það sé skringilegt að upplifa dag þrjú í útgöngubanni. 

„Hér er allt mjög furðulegt svo vægt sé tekið til orða. Nýjar fréttir daglega og maður er fullkomlega óviss um hvað framhaldið verður. Staðan á Tenerife (og á fleiri stöðum) er skrítin. Það er skrítið að mega alls ekki fara út, að láta reka sig inn af vopnuðum hermönnum/lögreglumönnum ef maður á ekki erindi út. Kanarí-búinn fer eftir lögum, hann virðir boð og bönn að mestu. Engin örtröð í búðum lengur af því að það má bara fara einn í búðina og ef allir fara að morgni til eru þeir bara sendir heim og sagt að koma aftur eftir um það bil tvo tíma. Þessu tekur fólk þegjandi og hljóðalaust. Mér finnst það afar erfitt, finnst erfitt að láta segja mér hvað má og hvað ekki, kannski er það bara Íslendingurinn í mér,“ segir Svali. 

Hann segir að það sé stefnan að koma öllum ferðamönnum af eyjunni Tenerife sem fyrst svo smitum á fólki fækki. 

„0% ferðamenn og það virðist vera að takast hjá þeim. Ótrúlega mörg hótel sem hafa þegar lokað og ætla ekki að opna fyrr en í ágúst! Ég er innst inni að vona að það sé kjaftasaga, en það hefur hvergi verið skrifað neitt um það, bara frásögn frá einu hótelinu. En hvað sem því líður þá er ég ekki svartsýnn gaur, þetta á eftir að líða hjá en því miður með slæmum afleiðingum fyrir marga. Vona bara að við (og aðrir) lendum ekki ílla í því.“

Hann segir að hugarfarið hjá fólki sé að breytast. 

„Það er ekki gott að taka neitt sem sjálfsagðan hlut. Hefði ekki getað ímyndað mér hvað mikið af litlum hlutum skipta máli, en ég er að uppgötva það hratt. Við sendum ykkur öllum okkar bestu kveðjur. Breytingar geta verið afar jákvæðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert