Síkin í Feneyjum aftur tær

Kórónuveiran hefur ekki bara slæm áhrif um heim allan. Ótrúleg breyting hefur orðið á síkjum Feneyja á Ítalíu á síðustu dögum en þau eru orðin tærari en áður og fiskarnir eru nú sjáanlegir í vatninu. 

Feneyjar eru fjölsóttur ferðamannastaður allt árið um kring og mikil umferð um síkin á venjulegum dögum. Vegna mengunar hafa síkin orðið heldur grámygluleg í gegnum árin. Ítalía hefur farið gríðarlega illa út úr kórónuveiruheimsfaraldrinum og hefur ferðamönnum þar fækkað gríðarlega. Ferða- og samgöngubann er um alla Ítalíu og fólk beðið að halda sig heima.



Síkin í Feneyjum eru aftur orðin tær og þar má …
Síkin í Feneyjum eru aftur orðin tær og þar má sjá glytta í fiska og höfrunga. skjáskot/Instagram
mbl.is

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert