Breska ríkið hefur boðið ríkisborgurum sínum sem fastir eru í Perú flug heim til Bretland fyrir aðeins 250 pund eða um 40 þúsund íslenskar krónur. Upphaflega var þessum ríkisborgurum Bretlands boðið flug til heimalandsins á 2.600 bresk pund og því hefur verðmiðinn lækkað töluvert í verði.
Yfir 600 Breta eru fastir í Perú eftir að landamæri lokuðust í síðustu viku. Perú er vinsælasta landið í Suður Ameríku á meðal breskra ferðamanna en þar í landi er nú í gildi ferðabann.
Breska ríkið bauð upphaflega þessum ríkisborgurum að greiða fyrir flugmiða í hópfjármagnaða flugferð með kólumbíska flugfélaginu Avianca til Bretlands. Verðið var heldur hátt fyrir hinn almenna Breta sem hafði lagt leið sína til Perú.
Í dag fengu þau svo tölvupóst þess efnis að nokkur flug myndu fljúga frá Perú til Bretlands í vikunni og að þau gætu tryggt sér far með þeim vélum. Auk þess þarf ekki að greiða fyrir miðann fyrr en við heimkomu í Bretlandi.
Hugsanlegt er að þessar vélar muni fljúga frá herflugvöllum heldur en almennum flugvöllum.
Farþegum í áhættuhópi verður forgangsraðað en þeir sem sýna einkenni kórónuveirusmits fá ekki að fljúga heim.
Utanríkisráðherra Bretlands, Dominic Raab talaði við kollega sinn í Perú, Gustaco Meza-Cuadra, á laugardag. „Á meðan við berjumst við kórónuveiru heimsfaraldurinn, ætlum við að vinna saman á næstu dögum við að koma breskum ríkisborgurum í Perú og perúskum ríkisborgurum í Bretlandi til síns heima,“ sagði Raab.
Frétt af vef Independent.