Heimurinn fylgist með Ásu ferðast

Ása Steinars er ferðaljósmyndari og áhrifavaldur.
Ása Steinars er ferðaljósmyndari og áhrifavaldur. Ljósmynd/Aðsend

Ása Stein­ars starfar við það að ferðast en hún er bæði ljós­mynd­ari og áhrifa­vald­ur. At­vinnu­lands­lag henn­ar hef­ur breyst tölu­vert á stutt­um tíma en Ása er ekki af baki dott­in. Hún ætl­ar að nýta tím­ann til þess að halda áfram að deila fallegum ljósmyndum frá Íslandi og hvet­ur fólk til þess að búa til gott markaðsefni þegar réttur tími gefst.

„Verk­efn­in mín eru ansi fjöl­breytt og fela í sér að ljós­mynda fyr­ir fyr­ir­tæki, aðstoða við markaðsmál og sam­fé­lags­miðlaher­ferðir. Mörg verk­efni koma í gegn­um In­sta­gram en ég er með um 200 þúsund fylgj­end­ur. Þar sem ég ljós­mynda aðallega ferðalög þá sjá ferðafyr­ir­tæki sér oft hag að því að ráða mig sem ljósmyndara, fá mig til að búa til efni frá minni upplifun og aug­lýsa í gegn­um minn aðgang. Þar sýni ég oft frá upp­lif­un sem fyr­ir­tæki eða áfangastaðir hafa upp á að bjóða,“ seg­ir Ása um starf sitt.

Ása nýtur þess að fara á fjallaskíði.
Ása nýtur þess að fara á fjallaskíði. Ljósmynd/Aðsend

Hvað ger­ir ferðaáhrifa­vald­ur þegar mörg lönd hafa lokað landa­mær­um?

„Núna þegar þetta óvissu ástand rík­ir í heim­in­um þá hef ég tekið meðvitaða ákvörðun um að hægja á mér. Auk þess eru færri verk­efni í boði. Ég reyni hins veg­ar að gera það besta úr stöðunni og held áfram að stunda mína ástríðu og ein­beiti mér að því að ljós­mynda Ísland og sýna frá upp­lif­un­inni. Ég hef þó verið passasöm um að halda mér frá fólki og fylgja ráðleggingum frá yfirvöldum“

Á flótta und­an kór­ónu­veirunni síðan í janú­ar

Ása byrjaði snemma að fylgj­ast vel með frétt­um af veirunni og þurfti meðal ann­ars að breyta ferðalagi sínu til Asíu í janú­ar.

„Árið 2020 er búið að vera afar ann­ríkt hjá mér. Ég er búin að vera að mynda í Jap­an, Fil­ipps­eyj­um og á Græn­landi. Það voru mörg verk­efni framund­an og ég var á leið til Aust­ur­rík­is á svipuðum tíma og Ísland greindi það sem háá­hættu­svæði. Þar átti ég að fara að ljós­mynda skíðaviðburð og ferðalagið átti að halda áfram til Zermatt í Sviss að ljós­mynda og vinna fyr­ir ferðamála­stofn­un þar í landi. Ég var mjög spennt að tækla þessi verk­efni en ég tók fljótt ákvörðun um að hætta við þess­ar ferðir og sjá hvað myndi ger­ast,“ seg­ir Ása sem er nú heima á Íslandi.

Ása var í Asíu í byrjun árs.
Ása var í Asíu í byrjun árs. Ljósmynd/Aðsend

„Snemma í janú­ar þá átti ég bókað flug til Asíu og báðar leiðir í gegn­um Kína. Ég var búin að skipu­leggja stopp í Pek­ing og Sj­ang­haí. Tveim­ur dög­um eft­ir að ég bókaði flugið fann ég litla grein um að ein­hver skrít­in veira væri í gangi þar. Viku fyr­ir brott­för voru frétt­ir farn­ar meira á flug og það var ansi ljóst að þar var eitt­hvað mikið í gangi. Þannig að ég breytti flug­inu mínu og hélt áfram mín­um plön­um um að fara til Jap­an. Þar dvaldi ég í þrjár vik­ur, ferðaðist um landið og fór á skíði í Norður-Jap­an. Þaðan hélt ég til Fil­ipps­eyja og þá var far­ald­ur­inn far­inn að aukast. Ég þurfti all­an tím­ann að vera meðvituð og ég var byrjuð að spritta hend­ur og vera mjög passa­söm strax í lok janú­ar.

Áður en ég kom til Íslands hafði ég verið á ferðalagi um Græn­land að ljós­mynda landið að vetri til og vinna fyr­ir Visit Green­land.“

Ása myndaði lífið á Grænlandi.
Ása myndaði lífið á Grænlandi. Ljósmynd/Aðsend

Hef­ur þú þurft að fara í sótt­kví?

„Ég var hepp­in að losna al­veg við sótt­kví. Ég er búin að vera á hálf­gerðum flótta und­an veirunni allt árið, því hún er búin að vera allt í kring­um mig al­veg síðan ég fór til Jap­an í janú­ar. Ég kom heim nokkru áður en Ísland var farið að nota sótt­kví og ég hef verið heilsu­hraust all­an tím­ann.

Ég lenti reynd­ar í því óhappi að veikj­ast af matareitrun um borð í 13 klukku­stunda flugi frá Fil­ipps­eyj­um til Ist­an­búl. Þá var al­veg „code red“ og áhöfn­in stressuð og hélt að ég væri smituð af Covid19. En síðan hita­mældu þau mig og ég var al­veg hita­laus og reyndi að út­skýra fyr­ir þeim að ég hefði borðað skemmd­an mat á flug­vell­in­um. Það fór sem bet­ur fer á besta veg og þau hleyptu mér í næsta flug sem var á leið til Dan­merk­ur. Þá kom smá stress hjá mér um að ég myndi enda í sótt­kví í Tyrklandi. Eftir það atvik ráðfærði ég mig við lækna heima á Íslandi sem sögðu mér að vera alveg róleg og halda mínu striki.“

Tæki­færi en ekki bara erfiðleik­ar

Hvernig eru næstu mánuðir?

„Það er frek­ar óljóst hvernig næstu mánuðir verða hjá mér og staðan gæti reynst ansi erfið. Ég vona að ég geti haldið áfram minni ástríðu að ljósmynda landið okkar. Draumastaðan væri að vinna með fyr­ir­tækj­um inn­an­lands. Þrátt fyr­ir að þetta ástand sé ansi óhugn­an­legt, þá held ég að fyr­ir­tæki ættu ekki að sitja al­veg lömuð. Það eru ýmis tæki­færi núna, þá sér­stak­lega að Ísland er al­veg tómt. Þegar versta ástandið gengur yfir gæti skapast tækifæri til að taka upp flott mynd­bönd af land­inu, nýta það að nátt­úru­laug­ar eru tóm­ar og enginn fyr­ir fram­an Geysi. Fyrirtæki gætu farið í flott ljós­mynda­átak, hvort sem að það er ferðafyr­ir­tæki eða tískufatnaður, oft þarf ekki fleiri en einn til tvo til að búa til flott efni. Margt af því sem ég bý til fyrir fyrirtæki geri ég sjálf með þrífæti, þannig svona verkefni þurfa ekki að skapa neina sérstaka áhættu.

Fólk í útgöngubanni er mikið á samfélagsmiðlum og fylgist meðal …
Fólk í útgöngubanni er mikið á samfélagsmiðlum og fylgist meðal annars með Ásu á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend

Ég held að það sé mik­il­vægt að við styðjum við hvort annað, velj­um ís­lenskt, versl­um við söluaðila sem okk­ur þykir vænt um. Ég vona að fyr­ir­tæki geri það sama. Velja sér að vinna með ís­lensk­um ljós­mynd­ur­um og áhrifa­völd­um. Staðan í heiminum í dag er erfið en það munu koma bjartari tímar og fólk mun að lokum ferðast á ný.“

Ertu spennt fyr­ir því að ferðast um Ísland á næst­unni?

„Í þessu öllu sam­an þá er ég afar þakk­lát fyr­ir að geta kallað Ísland heim­ilið mitt. Mér finnst við vera að taka mjög vel á þess­um mál­um. Ég er búin að vera síðustu tíu daga fyrir Norðan í snjónum. Ferðaþjón­ustuaðilar hafa verið hjálp­samir og leyft mér að gista a tóm­um gististöðum. Ég er einnig búin að vera í bú­stað og nýti góða veður­daga til að skella mér á fjalla­skíði. Það er búið að vera dá­sam­legt og frá­bær lífs­gæði sem við búum við. Ég er samt sem áður búin að vera í hálf­gerðri „úti­vist­arein­angr­un“. Ég hitti nán­ast enga, nema kær­ast­ann. Við hitt­um aðeins annað fólk þegar við versl­um í mat­inn. Þannig vil ég líka reyna að leggja mitt að mörk­um að lág­marka smit, þrátt fyr­ir að vera á smá ferðalagi. Ég held að við getum öll verið dugleg að nýta þessa flottu náttúru sem við eigum en vera passasöm að umgangast ekki annað fólk og svo auðvitað fylgjast með ráðleggingum frá Víði og teyminu.“

Ljósmynd/Aðsend

Sérð þú tæki­færi í því sem á sér stað núna?

„Staðan er að sjálfsögðu afar viðkvæm en ég sé einnig tækifæri, ef rétt er farið að. Ég sé einna helst tækifæri til að búa til markaðsefni og vera tilbúin með það þegar heimurinn kemst í betra horf. Fyr­ir­tæki geta verið til­bú­in með ótrú­lega flott efni þegar að rétti tíminn kemur til að markaðssetja. Ferðalög munu til dæm­is breyt­ast, fólk mun sækj­ast meira í víðáttu eins og á Íslandi, frek­ar en að liggja á troðinni sól­ar­strönd. Auk þess mun þetta fela í sér nýja neysluhegðun hjá fólki og breytt viðmið.

Þannig að núna er tæki­færið að gera eitt­hvað skapandi. Fríhöfnin stendur til dæmis tóm sem og Bláa lón­inð. Gætum við nýtt okkur það? Útbúa mynd­bönd og markaðssetja náttúru Íslands. Ísland var aðeins komið með orðspor á sig fyr­ir að vera „troðið af túrist­um“. Núna er hins veg­ar tæki­færi að sýna alla hina staðina sem hafa ekki enn orðið fræg­ir, Vest­f­irðina og Aust­f­irðina.

Ása fer víða vinnu sinnar vegna.
Ása fer víða vinnu sinnar vegna. Ljósmynd/Aðsend

Stór hluti af mínu starfi hef­ur farið í að ljós­mynda og aug­lýsa Ísland og ég hef mest megn­ist greitt það úr eig­in vasa. Ég veit að það eru nokkr­ir aðrir að gera hið sama hér á landi. Það væri því sterk­ur leik­ur ef stjórn­völd styrktu til dæmis þessa aðila, þannig að við get­um haldið því áfram. Við erum með smá sér­stöðu vegna þess að mest öll Evr­ópa er í út­göngu­banni og er á samfélagsmiðlum á meðan við á Íslandi getum enn farið út að mynda og verið í nátt­úr­unni. Það getur að sjálfsögðu breyst, enda kom fram nýjar fréttir og ráðleggingar daglega. En þetta gæti verið tæki­færi til að grípa áhorf­end­ur og viðra þá hugmynd að Ísland sé næsti áfangastaður þegar allt opn­ar á ný. Þetta eru klárlega tækifæri, en það þarf að vanda til verka, þar sem þetta eru að sjálfsögðu viðkvæmir tímar.“

Ævin­týri á Íslandi

Ef ástandið batnar í sumar þá mæl­ir Ása meðal ann­ars með því að leigja sér hús­bíl og ferðast um Ísland.

„Það stefnir í sumar þar sem verður lítið um utanlandsferðir og mögulega mun skapast tækifæri fyrir okkur að ferðast innanlands, þá mæli ég ein­dregið með því að leigja sér hús­bíl. Það eru ótal hús­bíl­ar sem standa nú kyrr­ir í Reykja­vík. Ef­laust er hægt að fá þá á góðu verði. Ég mæli síðan með því að keyra um fal­lega landið okk­ar og heim­sækja staði sem fólk hef­ur ekki haft tíma í að heim­sækja áður. Þar að auki lág­mark­ar það eflaust smit ef all­ir eru á hús­bíl­um og það er frábær ferðamáti. Það er svo mikið af fal­leg­um perl­um á Vest­fjörðum og Aust­fjörðum. Það er til dæm­is um að gera að fara í fjall­göng­ur, baða sig í nátt­úru­laug­um, skoða fossa og svo fram­veg­is. Það er nóg pláss fyr­ir alla til að njóta nátt­úr­unn­ar og einnig hafa stjórnvöld gefið okkur Íslendingum smá styrk til að ferðast innanlands.

Ég gekk ný­lega upp að Hengi­fossi fyr­ir aust­an sem er dá­sam­leg­ur staður. Ég mæli með að horfa á miðnæt­ur­sól­ina á Seyðis­firði eða nýta tæki­færið og fjár­festa í æv­in­týri sem þú hef­ur aldrei upp­lifað á Íslandi eins og jökla­göngu, snjósleðaferð eða snorkla í Silfru. Allt þetta eru æv­in­týri sem við Íslend­ing­ar ætt­um að upp­lifa.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert