Fjallaskíðaferðir njóta vaxandi vinsælda

Ísland er vettvangur endalausra ævintýra fyrir þá sem vilja ferðast fyrir eigin afli og njóta fjalladýrðar og náttúru sem við erum svo rík af. Möguleikar til að stunda útivist á fjöllum eru fjölmargir.

Fjallgöngur, fjallahlaup, sleðaferðir, jeppaferðir, hestaferðir, gönguskíði og þannig mætti lengi telja. Fjallaskíðun er ein tegund af útivist og hefur notið sífellt meiri vinsælda á síðustu árum. Fjallaskíðaferðir Ferðafélags Íslands hafa notið mikilla vinsælda. Tómas Guðbjartsson, einn af fjallaskíðafararstjórum FÍ, segir ástæðuna einfalda.

„Þú kemst hraðar yfir og nærð meiru út úr deginum. Oft er auðveldara að ganga á fjallaskíðum en í gönguskóm í snjó, ekki síst ef um lausamjöll eða blautan snjó er að ræða. Fjallaskíðin fara betur með líkamann, ekki síst á leiðinni niður, en þau minnka álag á hné, ökkla og mjaðmir. Svo er ferðin niður eins konar rúsína í pylsuendanum sem erfitt er að toppa. Svona heilt yfir ættu allir sem hafa gaman af vetrar- og vorferðum að íhuga fjallaskíði. Búnaðurinn er vissulega dýr en kostnaður fer lækkandi. Og þetta er góð fjárfesting sem endist,“ segir Tómas.

Það er að ýmsu að huga í aðdraganda ferðar en réttur útbúnaður er mikilvægastur. „Athuga þarf að skinn undir skíðin gleymist ekki og að þau passi á skíðin,“ segir Tómas. „Það þarf líka að passa að skórnir séu rétt stilltir fyrir skíðin og að stafir séu í lagi. Síðan má ekki gleyma réttum fatnaði og hlýjum aukavettlingum og hlýrri húfu en líka sólgleraugum og skíðagleraugum. Að minnsta kosti þrjú lög eiga við í öllum vetrarferðum.“

Í ferðum Ferðafélags Íslands er lögð áhersla á öryggið í öllum ferðum, ekki síst þegar um vetrarferðir á fjöllum að ræða og gera verður ráð fyrir því að veður geti skipast í lofti og ýmsar hættur leynst í íslenskri náttúru allt árið um kring. „Í fyrsta lagi þurfa allir þátttakendur að hafa ýlu, snjóflóðastöng og létta skóflu meðferðis,“ segir Tómas. Í jöklaferðum er farið í öryggislínu enda sprungur víða í jöklum og enginn ætti að fara í jöklagöngu nema með reyndum fararstjórum og með allan öryggisbúnað meðferðis.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert