„Endrum og sinnum hendir náttúran í okkur krefjandi verkefnum“

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.

Eins og víða annars staðar á landinu var veturinn erfiður í Vestmannaeyjum. Þar þurfti að grípa til sérstaklega strangra smitvarnaaðgerða eftir að hópsmit blossaði upp í þessu smáa samfélagi. „Á tímabili var eins og allt hefði stoppað og þegar gengið var um bæinn á kvöldin hefði mátt halda að Eurovision væri í gangi því enginn var á ferli,“ segir Íris Róbertsdóttir. „Eyjamenn tókust á við þetta verkefni af ótrúlegri elju og dugnaði, og gekk í raun ótrúlega vel. Það sást vel í vetur að við erum alls ekki óvön því að endrum og sinnum hendi náttúran í okkur krefjandi verkefnum sem verður þá einfaldlega að takast á við.“

Íris er bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar og mæddi mikið á henni og starfsfólki bæjarins í kórónuveirufaraldrinum. Ljóst er að veiran hefur haft bæði kostnað og tekjutap í för með sér fyrir bæjarfélagið og nefnir Íris að ákveðið hafi verið að koma til móts við bæjarbúa með því að rukka aðeins fyrir veitta þjónustu en ýmis starfsemi bæjarins breyttist mikið í faraldrinum og var t.d. aðeins í boði leikskólavistun annan hvern dag, stofnanir lokaðar almenningi og íbúum sinnt gegnum fjarfundabúnað. „Það er lán í óláni að faraldurinn skyldi berast hingað á þeim tíma árs sem er rólegastur í ferðaþjónustunni og áhrifin því vægari en ella fyrir þann tiltekna hluta atvinnulífsins, þó skaðinn sé samt mjög mikil. Sjávarútvegsfyrirtækjunum tókst líka að haga málum þannig að ekki þurfti að gera hlé á veiðum eða vinnslu. Loka þurfti leikskóla, grunnskóla og íþróttahúsum eftir að fjöldi starfsmanna var sendur í sóttkví, en í einkageiranum þurfti aðeins eitt stórt fyrirtæki að skerða starfsemi sína verulega um skeið.“

Margt um að vera í sumar

Er óhætt að segja að Vestmannaeyingar hafi glaðst yfir komu sumarsins og er lífið í Eyjum smám saman að komast aftur í eðlilegt horf. „Búið er að slaka á takmörkunum og er t.d. tveggja metra reglan núna valkvæð. Samfélagið er tekið að glæðast innan þeirra takmarkana sem fylgja þarf og hefur verið líflegt í bænum það sem af er sumri,“ segir Íris en fyrsta stóra íþróttamót sumarsins var haldið á dögunum þegar ÍBV hélt TM-mótið þar sem fræknar ungar stúlkur í 5. flokki sýndu góða takta á vellinum. Fleiri stórviðburðir og hátíðir eru í kortunum og er fótboltamót drengja, Orkumótið, á dagskrá í lok þessa mánaðar. Bjórsnillingarnir á Brother‘s Brewery hafa líka boðað til bjórhátíðar 20. júní og goslokahátíðin verður á sínum stað. Hátíðahöld á sjómannadaginn voru ekki felld niður heldur reynt að fagna innan þeirra marka sem reglurnar leyfa: „Við höfum ekki blásið hátíðirnar af heldur breytum frekar áherslum ef þess þarf. Þannig er fyrirhugað að goslokahátíðin leggi að þessu sinni meira upp úr barnadagskránni og menningarviðburðum á meðan hefðbundnir næturviðburðir í Skvísusundi og Skipasundi falla niður enda kalla samkomutakmarkanir á að mannfögnuðum ljúki ekki seinna en kl. 11 á kvöldin. Við finnum öll fyrir því að þetta verður ekki venjulegt sumar, en ætlum samt að gera okkur glaðan dag að því marki sem það er hægt.“

Að því sögðu er ekki enn ljóst hvort Þjóðhátíð í Eyjum verður á sínum stað eða hvernig skipuleggjendur gætu aðlagað viðburðinn að smitvarnakröfum. „Ég reikna með að aðstandendur hátíðarinnar komist að niðurstöðu á næstu tveimur vikum en ólíklegt er að Þjóðhátíð verði með hefðbundnu sniði enda viðburðurinn alla jafna sóttur af um 15-17.000 manns og dagskrá í gangi til kl. 4 að nóttu. Miðað við þær takmarkanir sem núna eru í gildi væri ekki hægt að halda þannig viðburð. Hins vegar er hefðin sterk og jafnvel ef ekki verður hægt að fylla Herjólfsdal af gestum þá verður örugglega haldin hátíð með einhverju sniði enda skemmtun sem er veigamikill hluti af menningararfi okkar með sögu sem nær allt aftur til ársins 1874.“

mbl.is/Ófeigur


Tvær aukastundir í sólarhringnum

Gaman er að segja frá því að íbúum Vestmannaeyja fjölgar hægt en örugglega og segir Íris sérstaklega ánægjulegt hvað ungir Vestmannaeyingar hafa verið duglegir að snúa aftur heim eftir að hafa sótt sér menntun og starfsreynslu annars staðar. „Hér nýtur fólk ákveðinna lífsgæða sem ekki má ganga að vísum á höfuðborgarsvæðinu. Vegalengdir eru styttri, auðvelt að koma börnum að hjá dagmæðrum og leikskóla og fasteignaverð mun hagstæðara en í höfuðborginni. Daglegt líf kallar ekki á mikinn akstur eða skutl og þeir sem flytjast hingað hafa oft á orði að tvær aukaklukkustundir bætist við daginn af þeim sökum.“

Íris á von á því að kórónuveirufaraldurinn verði til þess að fleiri skoði vandlega þann möguleika að flytja í smærra samfélag eins og Vestmannaeyjar og vinna fjarvinnu fyrir vinnuveitendur á höfuðborgarsvæðinu. „Ég held að faraldurinn hafi flýtt þróuninni í fjarvinnu um a.m.k. sex ár og bara á bæjarskrifstofunum hafa vinnubrögð tekið töluverðum breytingum af þeim sökum. Raunveruleikinn er sá að margir eiga þess núna kost að þurfa ekki að búa í næsta nágrenni við vinnuveitanda sinn enda ekki sama þörf á að vera á staðnum daglega og þá getur verið freistandi kostur að setjast að í skemmtilegu og lifandi bæjarfélagi eins og Vestmannaeyjum.“

Bíða eftir sjúkraþyrlu

Að því sögðu þá eru nokkur mál óleyst sem bæta myndu líf fólksins á svæðinu. Íris segir samgöngur á milli lands og Eyja loksins komnar í ágætt horf með nýrri ferju en í vetur var í fyrsta skiptið sem Landeyjahöfn hélst opin og nægilega djúp allan veturinn. Hún segir hagsmunagæslu á sviði samgangna og heilbrigðismála alltaf í forgrunni og er næsta stóra verkefni að þrýsta áfram á að heilbrigðisþjónustan á svæðinu verði bætt. Bendir Íris á að óheppilegt sé að ekki skuli vera skurðstofuvakt í Eyjum en ein lausn sem lögð hefur verið til er að fjárfest verði í sjúkraþyrlu sem staðsett verði á Suðurlandi. „Við höfum óskað eftir að hún verði staðsett hér í Eyjum, a.m.k. yfir vetrartímann, en við ákvarðanatöku á þessu sviði þarf m.a. að hafa í huga að á sumrin fjölgar mjög fólki á Suðurlandinu. Sumar helgar er íbúafjöldi Vestmannaeyja fjórfaldur á við það sem hann er alla jafna, og á vissum tímum árs má reikna með að um og yfir 15.000 manns búi í sumarhúsum á Suðurlandi. Er þá eftir að telja með þann mikla fjölda ferðamanna sem streymir þar í gegn í venjulegu árferði. Verður heilbrigðisþjónusta á svæðinu að taka mið af þörfum þessa mikla mannfjölda.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert