Söngkonan Nicole Scherzinger fagnar nú 42 ára afmæli sínu á sólarströnd í Portúgal. Þar nýtur hún lífsins með kærasta sínum Thom Evans sem er 35 ára. Þau flugu í frí til Portúgal þrátt fyrir kórónuveiru-faraldurinn og heimsóttu meðal annars foreldra Evans sem þar eru.
Scherzinger birtir myndir af sér á Instagram fáklæddri á skútu og þakkar Guði fyrir enn eitt árið sem hún er á lífi.
Scherzinger skaust upp á stjörnuhiminn með hljómsveitinni Pussycat Dolls og hefur einnig notið velgengni sem dómari í breska raunveruleikaþættinum The X Factor.
View this post on InstagramA post shared by Nicole Scherzinger (@nicolescherzinger) on Jun 29, 2020 at 1:27pm PDT