Mjólkursamlag varð að smekklegu gistiheimili

Elínborg og Elvar við gistiheimilið. Golf-tilboðið hefur fengið góðar viðtökur …
Elínborg og Elvar við gistiheimilið. Golf-tilboðið hefur fengið góðar viðtökur og örstutt í golfvöllinn. Ljósmynd/Aðsend

Það var í ferðalagi suður til Krítar að Elínborgu Ólafsdóttur og Elvari Unnsteinssyni manni hennar hugkvæmdist að opna hótel á Höfn í Hornafirði í samvinnu við systur Elvars, Írísi Dóru Unnsteinsdóttur og mann hennar Hilmar Stefánsson. „Þetta var árið 2015 og í ferðalaginu var okkur mjög hugleikið að vöntun væri á fleiri gistimöguleikum á Höfn. Kviknaði sú hugmynd að breyta gömlu mjólkurstöðinni í gistiheimili enda áhugaverð bygging sem enginn var að nýta,“ segir Elínborg.

Lét hópurinn verkin tala og tók Milk Factory við fyrstu gestunum í maí 2016. Elínborg segir viðtökurnar fljótlega hafa farið fram úr björtustu vonum og allt frá opnun var nóg að gera á hótelinu bæði á sumrin og á veturna.

Mjólkurstöðin á Höfn var byggð á 8. áratugnum til að hýsa mjólkursamlag fyrir bændurna á svæðinu. Mjólkurvinnslu var hætt árið 1996 og hýsti byggingin síðar verksmiðju sem framleiddi ensím úr humarskel. Eftir það var húsið stundum notað sem geymsla eða endrum og sinnum sem vinnurými listamanna. Byggingin blasir við á leiðinni inn til Hafnar og einkennist hönnun hennar m.a. af stórum gluggum sem þekja aðra hliðina og hleypa birtu inn í rými sem áður var vinnslusalur. Féll húsnæðið furðuvel að því að vera breytt í gistiheimili en samt sem áður þurfti að ráðast í töluverðar framkvæmdir og m.a. stækka glugga og bora göt á veggi til að koma nýjum gluggum fyrir. Samtals eru sautján herbergi í boði, þar af sex fjölskylduherbergi sem eru á tveimur hæðum og rúma fjóra gesti. Hvert herbergi er með sitt eigið baðherbergi og daglega borinn fram morgunverður í mötuneyti Mjólkurstöðvarinnar.

Fegurð Hornafjarðar blasir við þegar horft er út um gluggan
Fegurð Hornafjarðar blasir við þegar horft er út um gluggan

Útlendingana langar að koma

Eins og gefur að skilja hefur komum gesta á Milk Factory fækkað mjög á þessu ári vegna kórónuveirufaraldursins. Elínborg segir hafa verið ágætisstraum af innlendum ferðamönnum á suðausturhorni landsins í sumar en mikið vanti upp á til að fylla það skarð sem erlendu ferðalangarnir skildu eftir sig. „Margar bókanir útlendinga standa þó enn óbreyttar sem segir okkur að fólk langar að gera ferðalag til Íslands að veruleika.“

Til að laða til sín fleiri innlenda gesti hefur Milk Factory verið með alls kyns tilboð í sumar og hefur t.d. golfpakkinn slegið í gegn. „Það eru ekki nema um 300 metrarar frá gistiheimilinu á fjarskagóðan golfvöll. Bjóðum við upp á pakka með gistingu, morgunverði og hringi á golfvellinum auk veglegs afsláttar hjá veitingastöðunum Íshúsinu og Pakkhúsinu þar sem gott er að fá sér kvöldverð eftir ánægjulegan dag á golfvellinum.“

Er upplagt að nota tækifærið í sumar og heimsækja Höfn og nærsveitir og næsta víst að að ári liðnu verði skari erlenda ferðamanna kominn aftur á svæðið. Elínborg segir það koma mörgum á óvart sem þanga koma að sjá hvað Hornafjörður hefur breyst og þróast, og þannig býr t.d. Höfn núna að blómlegri flóru veitingastaða og fjölda gististaða sem voru ekki til fyrir fimm eða tíu árum. „Ég heyri það líka á mörgum gestum að þeir hafa látið allt of langan tíma líða frá síðustu heimsókn í þennan landshluta og jafnvel ekki komið svona langt austur í tuttugu ár eða lengur.“ ai@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert