Egill Helgason heldur upp á Siglufjörð

Egill Helgason fjölmiðlamaður.
Egill Helgason fjölmiðlamaður.

Egill Helgason hefur á ferli sínum sem sjónvarpsmaður ferðast víða um landið. Hann gerði meðal annars góða þætti um Siglufjörð og þar heillaðist hann mikið af þeim skemmtilega bæ en hann segir að sér finnist allt þetta landsvæði skemmtilega ólíkt því sem hann á að venjast fyrir sunnan. 

Ég tilheyri kynslóð sem man eftir vondum vegum og finnst í raun alveg merkilegt að hægt sé að bruna til Akureyrar á örfáum tímum,“ segir Egill sem hefur alið manninn í 101 til fjölda ára þar sem hann býr í hjarta miðborgarinnar.

„Norðurland er sérlega fjölbreytt og mér finnst líka þægileg tilfinning að vera kominn á Ísland sem er dálítið mikið öðruvísi en það sem ég þekki best. Fólkið talar meira að segja aðeins öðruvísi en við fyrir sunnan,“ segir Egill og bætir við að sér finnist sérstaklega skemmtilegt að tala við skýrmælta Norðlendinga:

„Ég grínaðist með það um daginn að ég væri svo mikið kamelljón að ég færi að tala norðlensku undir eins og ég kæmi þangað. Það eru mest brögð að þessu þegar ég kem í Þingeyjarsýslur. Þannig var ég varla kominn til Húsavíkur um daginn þegar ég hóf að tala klingjandi norðlensku. Ég get bara ekkert að þessu gert, en fjölskyldu minni finnst þetta brjálæðislega fyndið,“ segir hann og hlær.

Siglufjörður í sérstöku uppáhaldi

Spurður að því hvort hann eigi sér einhverja uppáhaldsstaði á Norðurlandi nefnir hann Siglufjörð sem hann segir í miklu uppáhaldi hjá sér eftir þættina sem hann gerði og voru sýndir á RÚV nú í vetur. „Siglufjörður hefur svo mikla og merkilega sögulega dýpt. Svo finnst mér ævintýralegt að aka meðfram norðurströndinni, frá Húsavík, út á Melrakkasléttu, Langanes og til Vopnafjarðar. Þar er maður kominn eins langt frá Reykjavík og hægt er, í mikið strjálbýli,“ segir hann. „Stundum hefur maður gott af því að vera þar sem er fátt fólk. Ég verð reyndar alltaf hissa þegar fólk þekkir mig á stöðum úti á landi en sjónvarpið sést víst þar líka,“ segir hann kíminn. „Húsavík finnst mér einnig vera indælisbær og ég á þann draum að Akureyri verði einhvern tíma alvöru borg, Ísland má alveg við því að eiga tvær borgir.“

Á margar minningar úr upptökuferðum fyrir sjónvarpið

Egill rekur aðra ætt sína í Húnavatnssýsluna, nánar tiltekið á Björnólfsstaði í Langadal sem eru rétt hjá Blönduósi.

„Ég fór þangað einu sinni þegar ég var lítill drengur með föðursystur minni og ég man að mér þótti þetta heldur fornbýlt enda bjó þar afabróðir minn ásamt ráðskonu sinni. Ég á í sjálfu sér engar sérstakar æskuminningar þarna að norðan því mínar minningar tengjast aðallega upptökuferðum fyrir Sjónvarpið. Sumir halda að ég sé holdgervingur 101-mannsins, en það passar ekki alveg því ég hef farið mjög víða um landið og tekið upp efni. Því fylgir yfirleitt mikil keyrsla og vinna, því ekki viljum við bruðla með fé Sjónvarpsins. Mest hef ég farið á Siglufjörð og eignast þar yndislega vini – en þessi landshluti togar mikið í mig,“ segir hann og teygir sig eftir kaffibolla um leið og hann heldur áfram: „Síldarminjasafnið á Siglufirði er til dæmis alveg á heimsmælikvarða og það er um að gera að gefa sér góðan tíma til að skoða það vel. Fyrir fólk sem hyggst gista á Siglufirði mæli ég tvímælalaust með hótelunum tveimur, Hótel Sigló og Hótel Siglunesi. Á síðarnefnda hótelinu er hinn rómaði marokkóski veitingastaður og á Akureyri fær maður einn besta indverska mat á Íslandi – að hugsa sér hvað heimurinn hefur breyst! Svo borðaði ég líka á stað sem heitir Báran á Þórshöfn síðasta haust og það var afburðagóður matur.“

Þingvellir „kidstöff“ miðað við Ásbyrgi

Að lokum nefnir Egill skrúðgarðinn á Húsavík sem heillaði hann upp úr skónum. „Ég held barasta að hann sé sá fallegasti á Íslandi, en það er ekki auðvelt að finna hann. Líklegast er best að fá leiðsögn frá heimamönnum. Svo er það Ásbyrgi. Sigurður Pálsson vinur minn ólst upp á næsta bæ við Ásbyrgi og sagði að miðað við það væru Þingvellir „kidstöff“ – það er nokkuð til í því. Ég var þar um daginn og heyrði söng og kvak í ótal fuglategundum – hvílík upplifun! Best finnst mér samt alltaf á ferðalögum að finna góða laut, helst við læk eða á, og sofna síðan svolítið í skauti náttúrunnar,“ segir 101-maðurinn og náttúruunnandinn Egill Helgason.

Siglufjörður er fallegur bær.
Siglufjörður er fallegur bær.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert