Ógleymanlegt að njóta sólarlagsins í Grímsey

Hjónin Hafþór Jónsson, Ásthildur Sturludóttir og Lilja Sigríður dóttir þeirra.
Hjónin Hafþór Jónsson, Ásthildur Sturludóttir og Lilja Sigríður dóttir þeirra.

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, segir að það ætti engum að leiðast í sumarfríi á Akureyri. Sjálf er hún búin að búa í bænum í tvö ár og kann vel við sig en áður var hún bæjarstjóri í Vesturbyggð. Í sumarfríinu ætlar hún að njóta alls þess besta sem Akureyri hefur upp á að bjóða en hún hyggst einnig fara vestur á Patreksfjörð. 

Hvað kom þér mest á óvart þegar þú fluttir norður og varðst bæjarstjóri?

„Það sem kom mér mest á óvart eftir að ég flutti norður er veðrið. Það er alltaf gott veður hérna og skýr skil á milli árstíða; veturinn harður, sumrin ljúf. Við upplifum mjög sjaldan rok og rigningu um lengri tíma eins og þekkist víða annars staðar á landinu. Það kom mér líka skemmtilega á óvart hvað fólkið hérna er lífsglatt og opið og auðvelt að kynnast því. Mér hafði nefnilega verið sagt að Akureyringar væru lokaðir en það er bara skrýtin skröksaga.“

Ef þú vildir fara í vikufrí norður, hvað myndir þú gera? Hvar myndir þú gista og hvar myndir þú borða?

„Ef ég væri í vikufríi fyrir norðan þá myndi ég auðvitað bæði gista og borða á Akureyri. Hér er úr nægu að velja hvort sem fólk vill vera á gistiheimilum eða hótelum, fá veislumat eða skyndibita. Ég myndi kíkja á söfnin, fara í sund í Sundlaug Akureyrar, taka nettan ísbíltúr í góða veðrinu, fara á róðrarbretti á Pollinum, leigja mér hjól, ganga á Súlur og skella mér svo út í Hrísey, skoða eyjuna og fá mér fisk og franskar hjá Lindu. Ef ég vildi gera eitthvað algjörlega einstakt og hefði góðan tíma, þá myndi ég fara út í Grímsey, skoða lundann, rölta norður fyrir heimskautsbaug og njóta sólarlagsins. Eitthvert kvöldið á Akureyri færi ég líka á Græna hattinn sem er einn alvinsælasti og besti tónleikastaður landsins. Fólk með börn unir sér vel á útivistarsvæðum bæjarins, til dæmis í Kjarnaskógi þar sem eru alls konar leiktæki og hægt að grilla á sérútbúnum útigrillum, bara muna að koma með kolin. Svo eru æðislegir leikvellir í bænum sem eru vel hirtir og þar geta krakkarnir gleymt sér við leik tímunum saman. Einn daginn færi ég út með Eyjafirðinum. Þar er margt að sjá. Kíkja á Hjalteyri, Hauganes og Árskógsströnd og út á Dalvík á antíkmarkað hjá Arnari. Á leiðinni væri gaman að koma við og skoða antík hjá Fröken Blómfríði í Hörgársveit. Það er sko hægt að gera góð kaup á báðum þessum stöðum! Og auðvitað fara heim að Völlum í Svarfaðardal og kaupa þar silung, reyktan ost og ber. Svo er geggjað að hjóla Eyjafjarðarhringinn eða keyra hann. Jólahúsið, Kaffi kú, Brúnir, Deiglan listhús og Smámunasafnið eru allt staðir sem er þess virði að heimsækja. Og af því að ég elska flóamarkaði þá er frábær markaður í Sigluvík.“

Kjarnaskógur er í uppáhaldi hjá Ásthildi.
Kjarnaskógur er í uppáhaldi hjá Ásthildi.

Hvert er best geymda leyndarmál Norðurlands?

„Í mínum huga eru best geymdu leyndarmál Norðurlands veitingastaðir og flóamarkaðir, já og svo auðvitað Grímsey.“

Hvað ætlar þú sjálf að gera í sumarfríinu?

„Ég ætla auðvitað að njóta alls þess sem ég hef nefnt hér að framan í sumarleyfinu mínu á Akureyri og Norðurlandi, en svo förum við líka vestur á Patreksfjörð og í Stykkishólm að hitta ættingja okkar. Vonandi gefst okkur líka færi á að gista nokkrar nætur í fellihýsinu okkar.“

Hvað finnst þér skipta mestu máli að gera í fríum?

„Í fríum er mikilvægast að skipuleggja ekki of mikið og spila frekar allt eftir eyranu.“

Hvernig klæðir þú þig í ferðalaginu?

„Gallabuxur, létt ullarpeysa eða bolur og strigaskór er það sem mér þykir þægilegast.“

Hvað er best við íslenska sumarið?

„Það besta við íslenska sumarið er birtan.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert