Alexandra og Gylfi í stíl á Sólheimajökli

Alexandra Helga Ívarsdóttir og Gylfi Þór Sigurðsson fóru í ógleymanlega …
Alexandra Helga Ívarsdóttir og Gylfi Þór Sigurðsson fóru í ógleymanlega ferð á Sólheimajökul. Ljósmynd/Instagram

Alexandra Helga Ívarsdóttir náttúrukokkur og fótboltamaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson eru búsett í Bretlandi en þau hafa verið á Íslandi upp á síðkastið.

Hjónin, sem giftu sig með mikilli viðhöfn á Ítalíu í fyrrasumar, hafa þrætt áhugaverða staði á Íslandi í sumarfríinu. Síðasta sunnudag fagnaði hún 31 árs afmæli sinu og af því tilefni skipulagði Gylfi Þór glæsilega afmælisveislu. 

Hjónin fóru á Sólheimajökul og tóku sig fantavel út á Instagram enda klædd í stíl. Hún í blárri 66°Norður skel og hann í ljósbláum útivistarjakka. 

View this post on Instagram

Ice climbing ❄️

A post shared by Lexa (@alexandrahelga) on Aug 12, 2020 at 5:35am PDT

Gylfi þakkar fyrirtækinu Obsidian fyrir hjálpina en fyrirtækið gerði það að verkum að ferðin var algerlega ógleymanleg! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert