Hélt upp á afmælið í einkaþotu eftir sambandsslitin

Sofia Richie.
Sofia Richie. Tommaso Boddi

Fyrirsætan Sofia Richie situr ekki heima grátandi þótt hún hafi nýlega hætt með raunveruleikastjörnunni Scott Disick. Hún fagnaði 22 ára afmæli sínu með vinkonum sínum um borð í einkaþotu. 

Richie og Disick hættu saman í vor eftir tveggja ára samband en sögusagnir voru á kreiki í sumar um að þau væru að reyna að endurbyggja sambandið. Það gekk ekki og í byrjun ágúst voru þau alveg hætt saman. 

Richie birti fjölda mynda og myndskeiða úr einkaþotunni þar sem hún og vinkonur hennar virtust skemmta sér vel. Í partíið komu einnig bróðir hennar Miles Richie og móðir hennar Diane Alexander. 

Allir afmælisgestirnir voru klæddir í eins föt sem á stóð „Sofia verður 22 ára“.

View this post on Instagram

22 feels good

A post shared by Sofia Richie (@sofiarichie) on Aug 23, 2020 at 12:55pm PDT

View this post on Instagram

Happy almost birthday Shmurp! I LOVE YOU! So beyond proud of the woman you are. @stassiebaby with the merch ❤️❤️❤️

A post shared by Miles Richie (@milesrichie) on Aug 23, 2020 at 12:59pm PDT



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert