Dorrit á ferð og flugi

Dorrit Moussaieff hefur verið á ferð og flugi síðustu daga …
Dorrit Moussaieff hefur verið á ferð og flugi síðustu daga og vikur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Dorrit Moussai­eff, fyrrverandi forsetafrú, hefur verið á miklu ferðalagi síðustu daga og vikur. Dorrit er dugleg að deila myndum og myndböndum á lokaðri instagramsíðu sinni. 

Í vikunni birti hún myndband af Mykonos í Grikklandi og sagði í athugasemd að hún væri stödd þar en héldi brátt til Austurríkis og þaðan til Feneyja á Ítalíu. 

Í gærkvöldi birti hún svo myndband af Feneyjum þar sem hún sigldi um síkin. Hún tók fram að Feneyjar væru ólíkar því sem áður var fyrir heimsfaraldurin en nú væri mun minna af fólki.

Óljóst er hvort eiginmaður hennar Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, hafi verið með henni í för en hann hefur ekki birt neitt á samfélagsmiðlum þess efnis. Hann hefur hins vegar birt mynd af íslenskum aðalbláberjum sem hann fékk að gjöf frá Össuri Skarphéðinssyni vini sínum.

Dorrit virðist ekki láta heimsfaraldurinn hafa mikil áhrif á ferðalög sín en sjálf smitaðist hún í vor.

Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert